„Dansstjörnur framtíðarinnar“

Útskriftardansnemar ársins.
Útskriftardansnemar ársins.

Útskrift­ar­sýn­ing nema í sam­tíma­dansi við Lista­há­skóla Íslands verður frum­sýnd í Black Box-rými Lista­há­skóla Íslands á Laug­ar­nes­vegi 91, en gengið er inn neðan við bygg­ingu um inn­gang næst Sæ­braut. Í til­kynn­ingu frá LHÍ kem­ur fram að sýnd verði tvö verk, Di­vine eft­ir Höllu Ólafs­dótt­ur og Disa­ster Resilience of the Water sem Sandrine Cass­ini samdi sér­stak­lega fyr­ir hóp­inn.

„Það er óhætt að segja að fjöl­breytn­in í bak­grunni dans­ar­anna og sú nálg­un sem námið fel­ur í sér skap­ar ríka og líf­ræna heild,“ er haft eft­ir Katrínu Gunn­ars­dótt­ur, dós­ent og fag­stjóra sam­tíma­dans­braut­ar við LHÍ, í til­kynn­ing­unni. Þar bend­ir hún á að námið sé alþjóðlegt, sem end­ur­spegl­ist í hópi út­skrift­ar­nema sem komi m.a. frá Finn­landi, Eistlandi og Íslandi.

„Það er einnig gam­an að segja frá því að aldrei hef­ur út­skrift­ar­hóp­ur­inn haft jafn hátt hlut­fall af karl­kyns döns­ur­um, eða þrjá af tíu. Þessi sýn­ing mark­ar mik­il­vægt augna­blik í lífi þess­ara ungu lista­manna – lok náms­fer­ils og inn­ganga í fag­heim danslist­ar­inn­ar. Þau eru dans­stjörn­ur framtíðar­inn­ar og við fáum að fylgj­ast með þeim hrífa okk­ur með sér.“

Útskrift­ar­nem­ar árs­ins eru Andrea María Ólafs­dótt­ir, Bert­ine Bertel­sen Fadnes, Elida Ang­vik Hovd­ar, Elsa Kamöy Furu­seth, Ja­ak­ko Ju­hani Fager­berg, Leevi Alpo Ant­in­poika Mett­in­en, Mari Ann Valkna, María Krist­ín Jó­hanns­dótt­ir, Re­bekka Guðmunds­dótt­ir og Torfi Tóm­as­son.

Sýnd­ar verða alls sex sýn­ing­ar dag­ana 9.-16. maí. Aðgang­ur er ókeyp­is en bóka þarf miða á tix.is.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Sporðdreki

Sign icon Þér gefst tækifæri til þess að bæta heilsuna á einhvern hátt í dag. Gerðu þér far um að hitta aðra og svaraðu heimboðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Satu Rämö
5
Lotta Lux­en­burg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Sporðdreki

Sign icon Þér gefst tækifæri til þess að bæta heilsuna á einhvern hátt í dag. Gerðu þér far um að hitta aðra og svaraðu heimboðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Satu Rämö
5
Lotta Lux­en­burg