Forvarsla stafrænna og tímatengdra miðla í listum verður eitt viðfangsefna málþings sem haldið er af Vasulka Foundation og BERG Contemporary á morgun, laugardag, kl.13 í Norræna húsinu.
Málþingið ber titilinn Steina og Woody Vasulka – Varðveisla arfleifðar: Forvarsla tímatengdra miðla í samhengi við innsetningu Woody Vasulka, The Brotherhood.
Varpað verður ljósi á brautryðjandi starf og áhrifamikil verk Steinu og Woody Vasulka, ásamt varðveislu stafrænna og tímatengdra miðla, í samhengi við lykilverk Woodys, „The Brotherhood“ (1990-1998), sem nú er sýnt í BERG Contemporary og er talið eitt af höfuðverkum listamannsins eftir því sem fram kemur í tilkynningu.
Á málþinginu koma saman virtir fagaðilar úr heimi samtímalista og forvörslu margmiðla og deila þekkingu sinni og innsýn. Kafað verður í verk Steinu og Woody Vasulka og fjallað um varanleg áhrif þeirra á samtímalistir og tækni, auk þess sem rætt verður um þær áskoranir og tækifæri sem felast í varðveislu og túlkun tímatengdra verka, með sérstaka áherslu á verkið The Brotherhood.
„Í raun má segja að þetta voru síðustu forvöð að bjarga innsetningunni því þeir sem komu að verkinu og þekktu til voru ýmist hættir störfum sökum aldurs eða látnir,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir framkvæmdastjóri BERG Contemporary um listaverk Vasulka en nánar er rætt við hana á menningarsíðum Morgunblaðsins á morgun.
Fyrirlesarar eru Patrícia Falcão, forvörður tímatengdra miðla frá Tate, Joey Heinen, stafrænn varðveislustjóri frá LACMA, Ingibjörg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BERG Contemporary, Christopher King, aðstoðarforvörður tímatengdra miðla frá Tate, George Morris forvörður tímatengdra miðla frá Tate, Margit Rosen, listfræðingur og sýningarstjóri frá ZKM, Halldór Björn Runólfsson, listfræðingur og fyrrum safnstjóri Listasafns Íslands og Kristín Scheving, safnstjóri Listasafns Árnesinga og framkvæmdastjóri Vasulka Foundation. Frítt er inn og allir velkomnir.