Lofsyngur Hitler í nýju lagi

Kanye West og Bianca Censori á 67. Grammy-verðlaunahátíðinni.
Kanye West og Bianca Censori á 67. Grammy-verðlaunahátíðinni. FRAZER HARRISON/AFP

Spotify, Soundcloud og aðrar streym­isveit­ur hafa fjar­lægt nýj­asta lag rapp­ar­ans Ye, áður Kanye West, en lagið nefn­ist „Heil Hitler“.

Bæði lagið og tón­list­ar­mynd­bandið hafa þó farið sem eld­ur um sinu X, áður Twitter, þar sem það hef­ur fengið millj­ón­ir áhorfa.

NBC grein­ir frá en fyrr í vik­unni gaf Ye út þetta nýj­asta lag sitt sam­hliða ann­arri smá­skífu er nefn­ist „WW3“ – og er einnig lof­söng­ur um Ad­olf Hitler, þýska nas­ist­a­leiðtog­ann á tím­um seinni heimstyrj­ald­ar.

Fjöldi streym­isveitna hef­ur fjar­lægt lagið af sín­um vett­vangi þar sem ekki þykir sæm­andi að veg­sama heil­ann á bakvið hel­för­ina. Und­ir lok fyrr­nefnda lags­ins heyr­ist hljóðbrot af Hitler tala.

En sum­ir miðlar hafa leyft lag­inu að standa en það hef­ur fengið einna mesta dreif­ingu á X, sem er í eigu auðkýf­ings­ins Elons Musks.

Ye birti tón­list­ar­mynd­bandið á X á fimmtu­dag þar sem það hef­ur hlotið tæp­ar 8 millj­ón­ir áhorfa og auk þess hafa 14 þúsund manns deilt mynd­band­inu. Þá deildi hann einnig mynd­skeiði af Andrew Tate, yf­ir­lýst­um kven­hat­ara, hlusta á lagið í bíln­um sín­um.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Sporðdreki

Sign icon Ert þú ekki með í paradís sem einhver nýtur til fullnustu? Fyrirgefðu. Geta þín til þess að einbeita þér og nema er með mesta móti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Moa Hern­gren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Sporðdreki

Sign icon Ert þú ekki með í paradís sem einhver nýtur til fullnustu? Fyrirgefðu. Geta þín til þess að einbeita þér og nema er með mesta móti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Moa Hern­gren