Biður mömmu sína um styrk fyrir flutninginn

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Norður­landapartí Eurovisi­on hélt áfram að slá í gegn í EuroClub-höll­inni við Messe Basel um helg­ina.

    Eitt heit­asta nafnið á svæðinu var Kyle Al­ess­andro (19 ára) sem syng­ur lagið Lig­hter fyr­ir hönd Nor­egs. Ungi söngv­ar­inn, sem sigraði norsku for­keppn­ina Melodi Grand Prix í fe­brú­ar, mun mæta Íslend­ing­um í sama undanúr­slitariðli á þriðju­dags­kvöld, þegar alls 15 lög keppa um tíu sæti í úr­slit­um laug­ar­dags­ins.
    Ísland opn­ar kvöldið, en Nor­eg­ur kem­ur á svið síðar í sömu lotu.

    „Mamma, gefðu mér styrk“

    Við hitt­um Kyle í par­tí­inu og spurðum út í rútín­una rétt fyr­ir flutn­ing:

    „Ég dreg djúpt að mér and­ann og bið síðan hljóðlega til mömmu minn­ar: Mamma, gefðu mér styrk. Svo byrja ég lagið,“ seg­ir hann. 
    Móðir Kyle hef­ur síðustu ár bar­ist við krabba­mein og text­inn, sem fjall­ar um að finna sinn innri styrk, er byggður á því.

    Aðspurður um skoðun sína á fram­lagi Íslands, Róa með VÆB, svar­ar Kyle hik­laust:

    „Ég elska það,“ og um það er eng­um blöðum að fletta því Kyle gerði sér lítið fyr­ir og söng viðlagið í miðju viðtal­inu, á ís­lensku.

    Þegar blaðamaður bend­ir á að hann virðist kunna text­ann vel tek­ur hann und­ir það: „Smá. Ég hef verið að hanga svo­lítið með VÆB. Hálf­dán og Matti eru rosa­lega sval­ir.“

    Sló fyrst í gegn tíu ára

    Kyle Al­ess­andro Helgesen Villa­lo­bos, fædd­ur í Levan­ger 10. mars 2006, er einn yngsti þátt­tak­andi keppn­inn­ar í ár. Hann sló fyrst í gegn í hæfi­leika­keppn­inni Nor­ske Talenter aðeins tíu ára og hef­ur síðan gefið út plöt­ur og sinnt góðgerðastarfi. Lagið Lig­hter, sem hann samdi ásamt sænska út­setjar­an­um Adam Woods, er poppslag­ari sem spáð er góðu gengi í keppn­inni.

    mbl.is fylg­ist með Eurovisi­on-hópn­um í Basel næstu daga og fær­ir les­end­um fersk­ar frétt­ir, mynd­bönd og stemn­ingu beint frá Sviss.

    Kyle Alessandro er einn yngsti keppandi Eurovisioní ár.
    Kyle Al­ess­andro er einn yngsti kepp­andi Eurovisi­oní ár. Ljós­mynd/​Alma Bengts­son
    mbl.is
    Fleira áhugavert

    Stjörnuspá »

    Fiskar

    Sign icon Of miklar upplýsingar gætu flækt málin og komið í veg fyrir að þú finnir réttu lausnina. Varastu bara að gera of mikið úr hlutunum eða ganga of langt.
    síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
    1
    Torill Thorup
    3
    Moa Hern­gren
    Fleira áhugavert

    Stjörnuspá »

    Fiskar

    Sign icon Of miklar upplýsingar gætu flækt málin og komið í veg fyrir að þú finnir réttu lausnina. Varastu bara að gera of mikið úr hlutunum eða ganga of langt.
    síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
    1
    Torill Thorup
    3
    Moa Hern­gren