Salurinn trylltist þegar bræðurnir Hálfdán Helgi og Matthías Davíð stigu á svið og fluttu lagið Róa klæddir glitrandi silfri. Dómararennsli Eurovision fór fram í St. Jakobshalle í kvöld, sólarhring áður en Ísland opnar fyrra undankvöldið.
Við tókum púlsinn á VÆB-bræðrunum eftir rennslið og voru þeir vægast sagt ánægðir með árangurinn.
„Þetta gekk ógeðslega vel, þetta var ekkert eðlilega mikil veisla,“ sögðu þeir og bættu við:
„Fór fram úr öllum væntingum.“
Hálfdán Helgi er þakklátur fyrir bróður sinn: „Ég vissi alveg að við myndum slátra þessu og við gerðum það. Ég er ótrúlega stoltur af bróður mínum fyrir að standa sig svona vel og öllu liðinu í heildina. Við erum ekki einir í þessu.“
Bræðurnir nefna að hávaðinn í salnum hafi farið alla leið í gegnum heyrnatólin:
„Það voru svo ógeðslega mikil læti í salnum að þau fóru í gegnum in-earið og ég heyrði bara brjáluð læti.“
Spurðir hvort eitthvað þurfi að laga fyrir beina útsendingu svara þeir í kór að svo sé ekki:
„Nei, ég væri sáttur ef að þetta hefði verið frammistaða okkar á morgun. Umferð tvö af þessu og þá erum við bara golden.“
Hálfdán bætir við: „Ég er svo ótrúlega sáttur með þennan flutning.“
Hversu mikið langar bræðurna í úrslitin?
„Mjög, mjög mikið. Ímyndaðu þér að þig langi í eitthvað og þú ert svona nálægt því að ná því. Við erum bara svona nálægt þessu. Ég er að missa mig. Okkur langar svo ógeðslega mikið að gera þetta. Við ætlum að gera þetta. Við ætlum að komast í úrslitin.“
„Núll stress. Við erum með þetta svo mikið á lási eitthvað. Bara búmm, gerum þetta. Fá að sýna öllum þetta atriði sem við höfum verið að vinna svo ógeðslega lengi að.“
„Allir krakkar eiga að borða gulrætur, bursta tennurnar og læra heima. Í alvöru, ekki sleppa þessu.“
mbl.is fylgist áfram með niðurtalningu að beinu útsendingunni annað kvöld, þegar VÆB opnar fyrra undankvöldið fyrir framan rúmlega 12.000 manns.