Gæti átt yfir höfði sér dauðarefsingu

Bryan Kohberger var doktorsnemi við Washingtion State-háskólann
Bryan Kohberger var doktorsnemi við Washingtion State-háskólann Skjáskot/Youtube

Bry­an Koh­ber­ger var doktorsnemi við Washingt­on State-há­skól­ann þegar hann var hand­tek­inn á heim­ili for­eldra sinna í Penn­sylvan­íu, í des­em­ber 2022, grunaður um morðin á fjór­um ung­um há­skóla­nem­um. 

Nú hafa komið fram ný gögn í mál­inu sem varpa óhugn­an­legu ljósi á aðdrag­and­ann.

Þann 13. nóv­em­ber 2022 fann lög­regl­an lík her­berg­is­fé­lag­anna Et­h­an Chap­in, Xönu Kernodle, Kay­lee Goncal­ves og Madi­son Mo­gens á heim­ili þeirra í Ida­ho. Þau voru öll á tví­tugs­aldri þegar þau lét­ust af fjölda stungusára. 

Svo virðist vera sem Chap­in hafi verið síðast­ur þeirra sem myrt voru, hann hafi verið sof­andi þegar Koh­ber­ger réðst á hann með því að skera hann í fót­legg­ina. Áður en hann myrti Chap­in hafði hann stungið Kernodle sem enn var vak­andi. Þá er talið að Mo­gens hafi verið upp­haf­legt skot­mark Koh­ber­ger þar sem hann fór fyrst inn í her­bergið henn­ar.

Al­rík­is­lög­regl­an skoðaði gögn úr síma Koh­ber­ger sem sýndu m.a. að hann hefði verið við heim­ili hinna látnu rétt eft­ir klukk­an níu um morg­un­inn, áður en hann fór aft­ur til síns heima, þar sem hann tók sjálfs­mynd af sér í spegli með þumal­inn upp­rétt­an.

Í sím­an­um fund­ust einnig tug­ir mynda af kven­kyns nem­end­um við Washingt­on State og Ida­ho-há­skóla. Í vafra­gögn­um sást að Koh­ber­ger hefði leitað eft­ir upp­lýs­ing­um á borð við „morð í Ida­ho“ og heim­ild­ir um raðmorðingj­ann Ted Bun­dy.

Rétt­ar­höld­in hefjast í ág­úst og ef Koh­ber­ger verður fund­inn sek­ur í öll­um ákæru­liðum gæti hann átt yfir höfði sér dauðarefs­ingu.

E News

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gætir fengið það á tilfinninguna í dag að einhvejum mislíki við þig eða að einhver vantreysti þér. Fatavalið getur haft áhrif á framkomu þína.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Torill Thorup
5
Satu Rämö
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gætir fengið það á tilfinninguna í dag að einhvejum mislíki við þig eða að einhver vantreysti þér. Fatavalið getur haft áhrif á framkomu þína.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Torill Thorup
5
Satu Rämö