„Jú, mér er mjög heitt í þessum galla“

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Bræðurn­ir Hálf­dán Helgi og Matth­ías Davíð fengu að svitna dug­lega á tur­kís­bláa dregl­in­um í Basel í Sviss í gær þar sem opn­un­ar­hátíð Eurovisi­on-söngv­akeppn­inn­ar fór fram. Dreg­ill­inn var 1,3 kíló­metra lang­ur og náði frá Rat­haus-torg­inu, yfir Mittl­ere-brú og niður að Eurovisi­on-þorp­inu við Riehenring.

    Blaðamaður mbl.is brá á leik og muldraði spurn­ing­ar í átt­ina að VÆB-bræðrun­um á meðan þeir fikruðu sig áfram á dregl­in­um í glitrandi silf­ur­jakka­föt­un­um.

    Þótt­ust skilja muldrið

    Þrátt fyr­ir illskilj­an­leg­ar spurn­ing­ar tóku Hálf­dán Helgi og Matth­ías Davíð ávallt létt­ir á móti þeim og gerðu sitt besta til að svara.

    „Morg­un­dag­ur­inn fer all­ur í æf­ing­ar. Tvær æf­ing­ar á morg­un og svo ein á þriðju­dag. Svo er bara showtime.“

    Blaða­maður bar svo upp spurn­ingu um hót­el bræðranna:

    „Ha? … Ég skil ekki!“

    Hit­inn und­ir silfr­inu far­inn að segja til sín

    Það sem þó vefst ekki fyr­ir þeim VÆB-bræðrum er hita­stigið und­ir glans­andi jökk­un­um:

    „Jú, mér er mjög heitt í þess­um galla. Við erum að svitna eins og mot­her­fuckers.“

    Stuttu síðar bættu þeir við:

    „Þetta verður negla. Við hlökk­um til að skemmta ís­lensku þjóðinni.“

    mbl.is fylg­ist með Eurovisi­on-hópn­um í Basel næstu daga og fær­ir les­end­um fersk­ar frétt­ir, mynd­bönd og stemn­ingu beint frá Sviss.

    mbl.is
    Fleira áhugavert

    Stjörnuspá »

    Vog

    Sign icon Þú ert fær um að afla þér tekna með því einu að opna munninn. Fólk sem skilur þig kann að meta þitt einstaka framlag.
    síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
    2
    Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
    3
    Arn­ald­ur Indriðason
    5
    Torill Thorup
    Fleira áhugavert

    Stjörnuspá »

    Vog

    Sign icon Þú ert fær um að afla þér tekna með því einu að opna munninn. Fólk sem skilur þig kann að meta þitt einstaka framlag.
    síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
    2
    Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
    3
    Arn­ald­ur Indriðason
    5
    Torill Thorup