Depardieu dæmdur fyrir kynferðisbrot

Franski leikarinn Gerard Depardieu.
Franski leikarinn Gerard Depardieu. AFP/Thierry Roge

Franski leik­ar­inn Ger­ard Dep­ar­dieu hlaut í morg­un 18 mánaða skil­orðsbund­inn fang­els­is­dóm fyr­ir að brjóta á tveim­ur kon­um við tök­ur á kvik­mynd­inni Les Volets Verts árið 2021.

Í frétt á vef frétta­veit­unn­ar AFP seg­ir að dóm­stóll í Par­ís hafi kom­ist að þeirri niður­stöðu að leik­ar­inn ætti að fara á skrá yfir kyn­ferðisaf­brota­menn. Leik­ar­inn var ekki viðstadd­ur þegar dóm­ur­inn var upp kveðinn en lögmaður hans sagðist myndu áfrýja dómn­um.

Um 20 kon­ur hafa sakað Dep­ar­dieu um ósæmi­lega hegðun og kyn­ferðis­brot og er málið það fyrsta sem farið hef­ur fyr­ir dóm­stóla. Ákær­end­ur í mál­inu eru tvær kon­ur sem störfuðu á tökustað, önn­ur þeirra aðstoðarleik­stjóri og hin kom að gerð leik­mynd­ar. Segja þær leik­ar­ann hafa snert þær með ósæmi­leg­um hætti og verið kyn­ferðis­lega gróf­an í tali.

Aðalsak­sókn­ari í mál­inu fór í mars sl. fram á 18 mánaða skil­orðsbund­inn dóm yfir Dep­ar­dieu sem hann seg­ir enga iðrun sýna.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Sporðdreki

Sign icon Stjörnurnar hafa gefið þér hæfileikann til að bjarga deginum fyrir fólki. Einn dagur úti í náttúrunni gæti verið nóg til að byggja þig upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
4
Arn­ald­ur Indriðason
5
Col­leen Hoo­ver
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Sporðdreki

Sign icon Stjörnurnar hafa gefið þér hæfileikann til að bjarga deginum fyrir fólki. Einn dagur úti í náttúrunni gæti verið nóg til að byggja þig upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
4
Arn­ald­ur Indriðason
5
Col­leen Hoo­ver