Ísland í fyrra holli úrslitanna

VÆB komst áfram í úrslit Eurovision í gærkvöldi.
VÆB komst áfram í úrslit Eurovision í gærkvöldi. AFP/Sebastien Bozon

Ísland verður með fyrri atriðum á svið á úr­slita­kvöldi söngv­akeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva, Eurovisi­on, í Basel á laug­ar­dag­inn. 26 lönd munu stíga á svið, þar á meðal Ísland.

Röð land­anna sem komust áfram í gær voru ákveðin með út­drætti í gær­kvöldi. Ljóst er að Ísland ásamt Spáni og Úkraínu verður í fyrri helm­ingi úr­slita Eurovisi­on. Það gæti því vel gerst að ís­lenska atriðið opni úr­slita­kvöldið líkt og það gerði á undanúr­slita­kvöld­inu í gær.

Alban­ía, Portúgal og Sviss munu stíga á svið í seinni helm­ingi úr­slita­kvölds­ins.

Útdrátt­ur­inn geng­ur þannig fyr­ir sig að lönd­in sem kom­ast áfram upp úr undanúr­slit­um draga öll einn miða. Hægt er að draga miðana „Fyrri helm­ing­ur“, „Seinni helm­ing­ur“ og „Val fram­leiðanda“.

Fram­leiðend­ur ákveða röð þeirra landa sem draga miðann „Val fram­leiðanda“ og ljóst er að þeir ákveða röð Eist­lands, Ítal­íu, Hol­lands, Nor­egs, Pól­lands, San Marínó og Svíþjóðar á úr­slita­kvöld­inu.

Það hef­ur þegar verið ákveðið að gest­gjaf­arn­ir í ár, Sviss, verða þeir nítj­ándu á svið á úr­slita­kvöld­inu.

End­an­leg röð atriða verður til­kynnt stuttu eft­ir seinna undanúr­slita­kvöldið á fimmtu­dag­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Ljón

Sign icon Þú gætir átt það til að gefa peninga til góðgerðarstarfsemi í dag, eða eyða fé í einhvern munað. Láttu gylliboð lönd og leið og leggðu til hliðar allt sem þú mátt.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Col­leen Hoo­ver
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
4
Torill Thorup
5
Lotta Lux­en­burg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Ljón

Sign icon Þú gætir átt það til að gefa peninga til góðgerðarstarfsemi í dag, eða eyða fé í einhvern munað. Láttu gylliboð lönd og leið og leggðu til hliðar allt sem þú mátt.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Col­leen Hoo­ver
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
4
Torill Thorup
5
Lotta Lux­en­burg