Litlu mátti muna að stórleikarinn Tom Cruise hefði dottið af flugvélavæng vélar sem hann gekk út á. Cruise er þekktur fyrir að framkvæma sín eigin áhættuatriði en nýjasta mynd hans, Mission: Impossible - The Final Reckoning, er engin undantekning. Myndin verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í kvöld.
Tom Cruise, sem er 62 ára, flaug rellunni sem notuð var í atriði myndarinnar einn síns liðs. Hann yfirgaf stjórnklefa flugvélarinnar í heilar 22 mínútur en það er 10 mínútum lengur en öryggisviðmið segja til um. Leikstjóri myndarinnar, Christopher McQuarrie, sagði frá því á Cannes í dag.
„Tom var orðinn úrvinda. Hann átti erfitt með að koma sér af flugvélavængnum,“ sagði MqCuarrie. „Vindurinn mætir þér á 225 kílómetra hraða. Þú færð lítið sem ekkert súrefni,“ bætti hann við.
Cruise tókst þó að halda meðvitund og komst aftur inn í stjórnklefann með naumindum. Þess má geta að hann er þjálfaður í listiflugi. „Til þess að bæta gráu ofan á svart, þá átti flugvélin aðeins eftir eldsneyti til að halda flugvélinni á lofti í 6 mínútur,“ sagði leikstjórinn McQuarrie.
„Þetta getur enginn á jörðinni nema Tom Cruise,“ bætti hann við.