Ein vinsælasta ABBA-sýning í heimi Mania: The ABBA Tribute er á leið til Íslands. Hún hefur verið sýnd í yfir 35 löndum síðustu tvo áratugi. ABBA-aðdáendur um allan heim hafa skemmt sér á sýningunni sem var til dæmis sýnd um öll Bandaríkin 2022 og 2023. Sýningin skartar hæfileikaríkum flytjendum og tónlistarfólki sem endurskapa síðustu tónleika hinnar goðsagnarkenndu sænsku hljómsveitar ABBA í lifandi flutningi með flottri sviðssetningu, búningum og lýsingu.
Á sýningunni verða öll frægustu lög ABBA eins og Mamma Mia, Voulez Vous, Dancing Queen, The Winner Takes It All, SOS, Fernando, Does Your Mother Know, Gimme! Gimme! Gimme!, Waterloo og fleiri.
„Tónlist ABBA er ómótstæðileg, glaðleg og tímalaus. Tónleikarnir eru fullkomnir fyrir alla ABBA- aðdáendur sem og nýja kynslóð sem hefur aldrei séð ABBA. Þetta er hið fullkomna tónlistarkvöld,“ segir James Cundall, sem stýrir breska framleiðslufyrirtækinu Jamboree Entertainment sem flytur sýninguna til landsins.
Það verður mikið um að vera í Hörpu þessa helgi í lok september því kvöldið áður en Mania: The ABBA Tribute stígur á svið í Eldborg í Hörpu mun ein vinsælasta kántrí hljómsveit í Bretlandi í dag Dominic Halpin and the Hurricanes stíga á svið á sama stað og halda tónleikana A Country Night in Nashville. Tónleikarnir koma beint frá The Royal Albert Hall í Lundúnum og metsölu tónleikaferðalagi í Bretlandi.
Kántrýsveitin er einnig á vegum Jamboree Entertainment en fyrirtækið er leiðandi í bresku tónleikahaldi á Íslandi.
„Við erum mjög ánægð og stolt að hafa komið nýverið með sýningar eins og Emilio Santoro sem Elvis, og Xenna sem Taylor Swift, í jafn glæsilega tónlistarhöll og Harpa sannarlega er. Mania: The ABBA Tribute og A Country Night in Nashville eru góð dæmi um frábærar hljómsveitir og listamenn sem munu gleðja áhorfendur á Íslandi eins og annars staðar þar sem þau hafa komið fram,“ segir hann.