Chris Brown handtekinn

Nokkrir tónleikar eru á döfinni hjá Chris Brown.
Nokkrir tónleikar eru á döfinni hjá Chris Brown. AFP

Banda­ríski tón­list­armaður­inn Chris Brown var hand­tek­inn í Bretlandi fyrr í dag grunaður um al­var­lega árás á næt­ur­klúbbi í London árið 2023.

Sam­kvæmt bresk­um miðlum hand­tók lög­regl­an Grammy-verðlauna­haf­ann, sem er 36 ára, snemma í morg­un á fimm stjörnu hót­eli í norðvest­ur­hluta Manchester. 

Lög­reglu­yf­ir­völd í Lund­ún­um hafa gefið út að 36 ára gam­all maður sé í haldi grunaður um al­var­lega lík­ams­árás en hafa ekki nafn­greint Brown.

Veitt­ist að fram­leiðand­an­um með flösku

Sam­kvæmt heim­ild­um The Sun var Brown hand­tek­inn fyr­ir meinta lík­ams­árás á tón­listar­fram­leiðand­ann Abe Diaw í London í lok fe­brú­ar árið 2023. Á hann að hafa veist að hon­um með flösku á næt­ur­klúbbn­um Tape í Ma­yf­a­ir-hverf­inu.

Brown flaug til Manchester-flug­vall­ar með einkaþotu í gær en hann á að koma fram á nokkr­um tón­leik­um í Bretlandi næsta mánuðinn.

Brown varð fræg­ur ung­ur að árum fyr­ir R&B-söng sinn og síðar rapp. Orðspor hans beið hnekki vegna ásak­ana um heim­il­isof­beldi og ann­ars kon­ar mis­notk­un.

Árið 2009 var hann dæmd­ur fyr­ir að hafa barið tón­list­ar­kon­una Ri­hönnu, þáver­andi kær­ustu sína, fyr­ir Grammy-verðlauna­hátíðina.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Tvíburar

Sign icon Reyndu ekki að þröngva skoðunum þínum upp á aðra. Ef einhver mótmælir, þá átt þú að gefa þér tíma til að útskýra þitt mál fyrir honum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Moa Hern­gren
3
Torill Thorup
4
Stein­dór Ívars­son
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Tvíburar

Sign icon Reyndu ekki að þröngva skoðunum þínum upp á aðra. Ef einhver mótmælir, þá átt þú að gefa þér tíma til að útskýra þitt mál fyrir honum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Moa Hern­gren
3
Torill Thorup
4
Stein­dór Ívars­son