Sýnir fyrrverandi af hverju hann er að missa

Kim Zolciak er 46 ára og sex barna móðir.
Kim Zolciak er 46 ára og sex barna móðir. Skjáskot/Instagram

Kim Zolciak úr þátt­un­um The Real Houswi­ves of Atlanta sýndi fyrr­ver­andi eig­in­manni sín­um Kroy Bier­mann af hverju hann er að missa þegar hún lét taka mynd­ir af sér í efn­is­litlu ljósgulu strengja­bik­iníi á ferðalagi sínu til Turks og Caicos- eyja.

Sex barna móðirin setti bik­iní­mynd­irn­ar á In­sta­gram-sögu sína í gær. Hún klædd­ist einnig stuttu strandpilsi, san­döl­um og bar töff sólgler­augu.

Hún lof­sam­ar eyj­arn­ar og seg­ir eng­an stað á jörðu eins og Turks. 

Kim Zolciak lítur vel út í ljósgulu bikiníi.
Kim Zolciak lít­ur vel út í ljósgulu bik­iníi. Skjá­skot/​In­sta­gram

Zolciak og fyrr­ver­andi ruðnings­leikmaður­inn Bier­mann giftu sig árið 2011 og eiga fjög­ur börn sam­an, en fyr­ir átti Zolciak dæt­urn­ar Aari­annu og Brielle. Í maí 2021, var fjöl­skylduþætti Zolciak, Don't Be Tar­dy, af­lýst vegna fjöl­skylda­vanda­mála en þætt­irn­ir höfðu verið í sýn­ingu á Bra­vo árin 2012-2020.

Tveim­ur árum síðar komu upp gíf­ur­leg fjár­hags­vanda­mál hjá hjón­un­um. Í fe­brú­ar 2023 stóðu hjón­in frammi fyr­ir að missa eign sína í Georgíu­fylki en þá kom fram að hjón­in skulduðu um eina millj­ón doll­ara í skatta. Þau skildu stuttu síðar.

Page Six

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nýtt upphaf er í loftinu. Þú þarft ekki að hafa allt á hreinu strax. Taktu eitt skref í einu og treystu ferlinu. Áframhald verður auðveldara.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
2
Eva Björg Ægis­dótt­ir
4
Mohlin & Nyström
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nýtt upphaf er í loftinu. Þú þarft ekki að hafa allt á hreinu strax. Taktu eitt skref í einu og treystu ferlinu. Áframhald verður auðveldara.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
2
Eva Björg Ægis­dótt­ir
4
Mohlin & Nyström