Þekktur miðill lét fjarlægja æxli í heila

Tyler Henry fékk batakveðjur frá aðdáendum sínum.
Tyler Henry fékk batakveðjur frá aðdáendum sínum. Skjáskot/Instagram

Sjón­varps­maður­inn Tyler Henry, best þekkt­ur sem miðill fræga fólks­ins í Banda­ríkj­un­um, til­kynnti aðdá­end­um sín­um á In­sta­gram í gær að hann hefði geng­ist und­ir aðgerð til að fjar­lægja æxli staðsett í miðjum heil­an­um.

Henry, sem er 29 ára, deildi mynd af sér liggj­andi í sjúkra­rúmi á sam­fé­lags­miðlasíðunni og sagði aðgerðina hafa heppn­ast vel. Hann sagðist einnig vera afar þakk­lát­ur heil­brigðis­starfs­fólki sem og fjöl­skyldu sinni.

Fjöl­marg­ir aðdá­end­ur hans, þar á meðal leik­kon­urn­ar Chris­sy Metz og Yvette Nicole Brown, sendu hon­um bata­kveðjur.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Henry gengst und­ir heila­sk­urðaðgerð.

Í In­sta­gram-færslu sem birt­ist í ág­úst 2023 opnaði hinn frægi miðill sig um að hafa geng­ist und­ir aðgerð stuttu eft­ir 18 ára af­mælið sitt, eða eft­ir að seg­ulóm­un leiddi í ljós það sem kall­ast á ensku „congenital brain cyst“, en miðill­inn hafði glímt við slæma höfuðverki vik­urn­ar á und­an.

Henry skaust upp á stjörnu­him­in­inn árið 2016 með þáttaröðinni Hollywood Medi­um with Tyler Henry. Miðill­inn er einn sá vin­sæl­asti í heimi og hef­ur hann heim­sótt nokkr­ar af þekkt­ustu stjörn­um Hollywood, þar á meðal leik­ar­ann Kels­ey Grammer, Kar­dashi­an-fjöl­skyld­una og leik­kon­una Meg­an Fox og tengt þær við látna ást­vini.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Krabbi

Sign icon Tilfinningalegur stöðugleiki fæst með einfaldleika. Leitaðu eftir því sem róar frekar en hrífur. Dagurinn snýst um að hlúa að innri friði.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
2
Eva Björg Ægis­dótt­ir
4
Mohlin & Nyström
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Krabbi

Sign icon Tilfinningalegur stöðugleiki fæst með einfaldleika. Leitaðu eftir því sem róar frekar en hrífur. Dagurinn snýst um að hlúa að innri friði.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
2
Eva Björg Ægis­dótt­ir
4
Mohlin & Nyström