Gefa út nýtt lag á keppnisdag

VÆB-bræður Matthías Davíð og Hálfdán Helgi á æfingu í St. …
VÆB-bræður Matthías Davíð og Hálfdán Helgi á æfingu í St. Jakobshalle. Ljósmynd/Sarah Louise Bennett af eurovision.tv

Nóg verður um að vera hjá VÆB-bræðrum á morg­un. Þeir koma ekki aðeins til með að stíga á svið og keppa fyr­ir Íslands hönd á úr­slita­kvöldi Eurovisi­on held­ur gefa þeir einnig út nýtt lag.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Rík­is­út­varp­inu en þar seg­ir að lagið heiti Dr. Saxoph­o­ne og séu bæði lag og texti sam­in af þríeyk­inu Matth­íasi Davíð, Hálf­dáni Helga og Inga Bau­er sem einnig pródúseraði lagið.

VÆB-bræður stíga á svið ásamt 26 öðrum þjóðum annað kvöld á úr­slita­kvöldi Eurovisi­on þar sem þeir flytja fram­lag Íslands, RÓA, en lagið komst áfram úr undanúr­slit­un­um á þriðju­dag­inn.

„Erum bún­ir að vera með þetta lag í mag­an­um.“

Í til­kynn­ing­unni frá RÚV kem­ur fram að bræðurn­ir séu spennt­ir að leyfa fólki að heyra nýja lagið og er eft­ir þeim haft:

„Við erum bún­ir að vera með þetta lag í mag­an­um í dáld­inn tíma og svo bara þegar við átt­um lausa stund hérna í Basel náðum við að klára þetta með Inga. Við erum bókaðir á al­veg hell­ing af skemmt­un­um og úti­hátíðum um allt land í sum­ar og við hlökk­um mikið til að syngja þetta fyr­ir þjóðina í góða veðrinu.“

Dr. Saxoph­o­ne verður hægt að nálg­ast á Spotify, Youtu­be og öll­um helstu streym­isveit­um á morg­un.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vatnsberi

Sign icon Vinátta eða samvinna getur tekið óvænta stefnu. Fylgstu með tilfinningum án þess að dæma. Ný tenging gæti reynst þér verðmæt á óvæntan hátt.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
2
Eva Björg Ægis­dótt­ir
4
Mohlin & Nyström
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vatnsberi

Sign icon Vinátta eða samvinna getur tekið óvænta stefnu. Fylgstu með tilfinningum án þess að dæma. Ný tenging gæti reynst þér verðmæt á óvæntan hátt.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
2
Eva Björg Ægis­dótt­ir
4
Mohlin & Nyström