Meghan Markle hellti sér yfir starfsfólkið

Karl Bretakonungur, Camilla hertogaynja af Cornwall, Elísabet drottning, Meghan Markle …
Karl Bretakonungur, Camilla hertogaynja af Cornwall, Elísabet drottning, Meghan Markle hertogaynja af Sussex, Harry prins, Vilhjálmur prins og Katrín hertogaynja af Cambridge saman komin í júlí, árið 2018, á svölum Buckingham-hallar til að fylgjast með herflugvél á vegum konunglega flugflotans. Tolga AKMEN / AFP

Her­togaynj­an af Sus­sex og lífstíls­mó­gúll­inn, Meg­h­an Markle, er sögð hafa hellt sér svo yfir starfs­fólk við und­ir­bún­ing brúðkaups þeirra Harrys Bretaprins að Elísa­bet II drottn­ing þurfti að stíga inn í. 

Harry prins og Meg­h­an giftu sig árið 2018 í St. Geor­ge's-kap­ell­unni í Windsor-kast­ala.

„Eitt skipti, í aðdrag­anda brúðkaups­ins fór Meg­h­an í kast­al­ann til að smakka á mat­seðlin­um sem endaði í leiðin­leg­um sam­skipt­um við starfs­fólkið,“ seg­ir kon­ung­legi ætt­fræðing­ur­inn Katie Nicholl í nýrri bók sinni The New Royals. 

Meg­h­an varð upp­stökk og sagðist hafa bú­ist við græn­met­is­fæði á mat­seðlin­um þegar Elísa­bet drottn­ing steig inn í og sagði: „Meg­h­an, í þess­ari fjöl­skyldu töl­um við ekki svona við fólk.“

Til­fellið er ekki það eina þar sem Meg­h­an hef­ur skeytt skapi sínu á starfs­fólki kast­al­ans.

Page Six

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Krabbi

Sign icon Tilfinningalegur stöðugleiki fæst með einfaldleika. Leitaðu eftir því sem róar frekar en hrífur. Dagurinn snýst um að hlúa að innri friði.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
2
Eva Björg Ægis­dótt­ir
4
Mohlin & Nyström
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Krabbi

Sign icon Tilfinningalegur stöðugleiki fæst með einfaldleika. Leitaðu eftir því sem róar frekar en hrífur. Dagurinn snýst um að hlúa að innri friði.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
2
Eva Björg Ægis­dótt­ir
4
Mohlin & Nyström