Chris Brown laus gegn tryggingu

Bandaríski rapparinn Chris Brown á Grammy-verðlaunahátíðinni í janúar, 2020.
Bandaríski rapparinn Chris Brown á Grammy-verðlaunahátíðinni í janúar, 2020. ALERIE MACON / AFP

Banda­ríski tón­list­armaður­inn Chris Brown var lát­inn laus gegn trygg­ingu fyr­ir dóm­stóli í London eft­ir að hann var ákærður fyr­ir þátt­töku í ljótri árás sem átti sér stað á næt­ur­klúbbi árið 2023.

Grammy-verðlauna­haf­inn, sem hef­ur ekki enn verið beðinn um að svara ákær­unni, mun geta hafið tón­leika­ferðalag sitt í næsta mánuði líkt og áætlað var.

Hann var hand­tek­inn á fimmtu­dag í síðustu viku og síðan ákærður fyr­ir al­var­lega lík­ams­árás þar sem hann átti að hafa ráðist á tón­listar­fram­leiðanda með tequila­flösku á Tape-klúbbn­um í Ma­yf­a­ir í London 2023.

Hinn 36 ára tón­list­armaður var ekki viðstadd­ur þegar ákvörðun var tek­in í dag þar sem dóm­ar­inn sagði hann laus­an gegn fimm millj­ón punda trygg­inga­gjaldi, eða um 860 millj­ón­ir króna.

Áætlað er að tón­leika­ferð Brown hefj­ist í Amster­dam 8. júní og síðar í mánuðinum og í júlí í Manchester, London, Car­diff, Bir­ming­ham og Glasgow. Ef hann kem­ur ekki til baka til Bret­lands eft­ir tón­leik­ana í Amster­dam mun trygg­ing­in renna út í sand­inn, en hann á að mæta fyr­ir rétt aft­ur 20. júní.

BBC

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Tvíburar

Sign icon Hlutirnir rúlla fínt núna og því er rétti tíminn til að leggja til hliðar, peninga í banka og mat í búrið. Leitaðu að hetjuskap í venjulegu fólki.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Tvíburar

Sign icon Hlutirnir rúlla fínt núna og því er rétti tíminn til að leggja til hliðar, peninga í banka og mat í búrið. Leitaðu að hetjuskap í venjulegu fólki.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup