Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson fór nýverið í huggulega myndatöku fyrir tískuvöruverslunina Húrra Reykjavík og niðurstaðan sýnir söngvarann í allt annarri mynd en fólk er vant að sjá. Flestir þekkja Jón sem brosmildan fjölskyldumann og hlýlegan lagasmið þar sem gítarinn er aðalvopnið en á þessum myndum birtist hann í aðeins alvarlegri og töff-stíl. Maðurinn virðist gera allt vel sem hann tekur sér fyrir hendur.
Nýi stíllinn kveikti heldur betur í fólki ef marka má athugasemdirnar undir myndasyrpurnar:
„Oh daddy!“ skrifaði áhrifavaldurinn Binni Glee undir fyrstu myndinasyrpuna og tónlistarmaðurinn Magnús Jóhann skrifaði: „Sexy Ru hver!?!?!?!“
En þar er hann að vitna í þúsundþjalasmiðinn Rúrik Gíslason sem hefur fengið gælunafnið Sexy Ru.
Sjálfur Rúrik lét ekki sitt eftir liggja og kommentaði á þriðju myndasyrpuna: „Ég pakka þá bara saman!“
Jón fagnar fertugsafmæli sínu síðar á árinu og má með sanni segja að hann eldist líkt og gott vín. Í nær tvo áratugi hefur hann sungið sig inn í hjörtu landsmanna með lögum á borð við Þegar ég sá þig fyrst og Ef ástin er hrein og hann er hvergi nærri hættur. Jón braut odd af oflæti sínu og byrjaði á TikTok í vikunni þar sem hann gaf fólki smjörþef af væntanlegu lagi sem kemur út á föstudaginn.