Starfsfólk Blake Lively opnar sig

Blake Lively leikkona.
Blake Lively leikkona. AFP

Sex fyrr­ver­andi starfs­menn lífs­stíls­fyr­ir­tæk­is­ins Preser­ve, sem var í eigu Bla­ke Li­vely, hafa stigið fram og greint frá „eitruðu, ófag­mann­legu og kaó­tísku“ vinnu­um­hverfi sem fólkið upp­lifði. 

„Allt fyr­ir­tækið var al­gjör hörm­ung,“ sagði einn af þess­um fyrr­ver­andi starfs­mönn­um í sam­tali við Daily Mail. 

„Ásak­an­ir Li­vely á hend­ur Just­in Baldoni eru írón­ísk­ar þar sem um­hverfið hjá Preser­ve var það klikkaðasta, eitraðasta, til­finn­inga­lega þreyt­andi og óskipu­lagðasta vinnu­um­hverfi sem þú gæt­ir ímyndað þér.“

Hin 37 ára gamla Li­vely stofnaði fyr­ir­tækið Preser­ve árið 2014. Fyr­ir­tækið varð ekki lang­líft því það lokaði á inn­an við ári eft­ir stofn­un þess.

Bæði systkin­in kæru­laus

Bróðir Li­vely, Eric Li­vely, var ráðinn í stöðu sköp­un­ar­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Greindu starfs­menn­irn­ir frá því að hann hafi van­rækt stöðu sína og oft sofið yfir sig sem leiddi til þess að starfs­menn hafi þurft að bíða eft­ir hon­um úti í kuld­an­um þangað til að hann opnaði stúd­íóið í Man­hatt­an þar sem fyr­ir­tækið var til húsa. 

Einnig hafi Li­vely sýnt mikið kæru­leysi og hafi hún meðal ann­ars ekki keypt nein hús­gögn inn á skrif­stof­una fyrstu mánuðina. 

„Í marg­ar vik­ur eða mánuði voru eng­in hús­gögn, hversu írón­ískt er að fyr­ir­tækið hafi verið að selja rán­dýr­ar lífs­stílsvör­ur en gat ekki séð fyr­ir skrif­borðum.“

Einnig sagðist starfs­fólkið hafa verið látið vinna ótal marga tíma í senn og ekki alltaf fengið borgað á rétt­um tíma. 

Hótuðu laga­leg­um aðgerðum

Þeim starfs­mönn­um sem hótuðu að taka til aðgerða vegna máls­ins bauðst sátta­greiðsla upp á allt að 300 þúsund doll­ara.

Öll óreiða inn­an fyr­ir­tæk­is­ins hélst þó á bakvið lukt­ar dyr vegna lang­tíma fjöl­miðlafull­trúa Li­vely, Leslie Sloa­ne. 

„Leslie Sloa­ne náði að halda öllu leyndu, þau grófu allt niður sem viðkom fyr­ir­tæk­inu.“

í viðtali við Entreprenour árið 2023 játaði Li­vely að hafa gert mis­tök við rekst­ur fyr­ir­tæk­is­ins. 

„Ég gaf allt í þetta fyr­ir­tæki en á bakvið tjöld­in voru hlut­ir sem við bara gát­um ekki fundið út úr,“ sagði hún um rekst­ur­inn.  

Ekki eini skandall Li­vely 

Þetta er ekki eina málið sem Li­vely teng­ist þessa dag­ana en hún er um þess­ar mund­ir í stór­um laga­leg­um deil­um við meðleik­ara sinn í „It ends with us“ Just­in Baldoni. Kærði hún hann meðal ann­ars fyr­ir kyn­ferðis­lega áreitni.

Þá kærði Just­in hana, eig­in­mann henn­ar Ryan Reynolds og fjöl­miðlafull­trúa þeirra, Leslie Sloa­ne fyr­ir hót­an­ir, kúg­un og meiðyrði. 

Áætlað er að rétt­ar­höld­in í því máli verði í mars á næsta ári. 

Blake Lively og Justin Baldoni.
Bla­ke Li­vely og Just­in Baldoni. Sam­sett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Naut

Sign icon Taktu þér smá tíma til að njóta smámunanna. Hættu að bera þig saman við aðra og treystu eigin taktvísi. Ný tækifæri bíða.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
5
Eva Björg Ægis­dótt­ir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Naut

Sign icon Taktu þér smá tíma til að njóta smámunanna. Hættu að bera þig saman við aðra og treystu eigin taktvísi. Ný tækifæri bíða.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
5
Eva Björg Ægis­dótt­ir