Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson hefur síðustu daga hitað upp fyrir nýtt lag, Tímavél, sem kemur út á föstudag. Til að fá alvöru viðbrögð við laginu leitaði hann til föður síns, Jóns Þórarinssonar, en upptakan sem Jón birti á TikTok fór ekki alveg eins og hann sá fyrir sér:
Jón: „Ertu ekki að fíla þetta?“
Pabbi Jóns: „Bíddu … er þetta ekki sama lag og þú sendir mér um daginn?“
Jón: „Jú, en bara af því að við erum að taka vídjó núna hvort að þú værir með einhver viðbrögð?“
Pabbi Jóns: „Nei, ég... Það hefur ekkert breyst. Mér finnst þetta svolítið flott sko.“
Jón: „Þetta átti að vera eitthvað svona tilfinningadæmi.“
Pabbi Jóns: „Já ég er ekki þannig, ég er ekki þannig Jón.“
Samtalið endaði svo á því að pabbi Jóns steig út úr bílnum og fór.
Jón kallaði þá á leikarann Örn Árnason. Hann sest í bílstjórasætið sem pabbi Jóns.
„Feel good, feel good, maður, vá! Sko, þú hefur alltaf verið svo snjall en þetta tekur öllu fram, Jón. Geggjað, geggjað! Svo stoltur og ánægður með þig.“
Svo brutust „feðgarnir“ í grát og föðmuðust þétt. Þessi dramatíska sena entist þó aðeins í örfáar sekúndur.
Þeir þurrka tárin og Örn spyr hvort þetta sé búið og hvort hann eigi að senda reikninginn á Jón eða pabba hans.
„Er þetta búið? Sendi ég reikning á þig eða pabba þinn?“
TikTok-myndbandið sem um ræðir má sjá hér að neðan:
Jón Jónsson hefur ekki látið lítið fyrir sér fara seinustu daga en á dögunum sat hann fyrir tískuvöruverslunina Húrra Reykjavík og myndirnar slóu heldur betur í gegn.