„Rætur mínar í leikhúsinu eru vissulega mjög sterkar og það er ákaflega spennandi að halda áfram samstarfi okkar Ólafs Jóhanns, nú í Þjóðleikhúsinu. Verkið er líka það gott að ég bara stenst ekki mátið. Svo fannst mér bara réttur tími að koma aftur í leikhúsið,“ segir Baltasar Kormákur sem á næsta leikári mun leikstýra nýju leikriti Ólafs Jóhanns Ólafssonar í Þjóðleikhúsinu.
Leikritið ber heitið Íbúð 10B. Samkvæmt upplýsingum frá leikhúsinu er um að ræða „ögrandi og meinfyndið verk beint úr íslenskum samtíma. Einn eigenda í glæsilegu fjölbýlishúsi í Reykjavík hefur ákveðið að breyta lúxusíbúð sinni í gistiheimili fyrir hælisleitendur. Nokkrir íbúar í húsinu ákveða að hittast til að leggja á ráðin um viðbrögð við þessari óvenjulegu stöðu. Á borðum eru góðir ostar og vín, en notaleg kvöldstund snýst brátt upp í harðvítug átök þar sem lögmál frumskógarins gilda undir kurteislegu yfirborðinu.“
„Ég hef haft ákaflega gaman af samvinnu við leikhúsfólk og hlakka til að sjá Íbúð 10B á Stóra sviði Þjóðleikhússins í meðförum þeirra frábæru listamanna sem að því koma. Ekki er langt síðan við Baltasar unnum saman að mynd hans Snertingu og var það samstarf eins og best verður á kosið. Það er tilhlökkun að hefja nýja vegferð með honum, leikhópnum og listrænum stjórnendum enda valinn maður í hverju rúmi,“ er haft eftir Ólafi Jóhanni í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu. Þar er rifjað upp að meðal fyrri leikrita Ólafs Jóhanns séu Rakstur í Þjóðleikhúsinu (2003), Fjögur hjörtu í Loftkastalanum (1997) og leikgerð Sniglaveislunnar hjá Leikfélagi Akureyrar (2001).
Meðal leikara í Íbúð 10B eru Björn Thors, Nína Dögg Filippusdóttir, Unnsteinn Manuel Stefánsson, Saga Garðarsdóttir, Gísli Örn Garðarsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson. Leikmynd hannar Ilmur Stefánsdóttir, Sunneva Ása Weisshappel búninga og Björn Bergsteinn Guðmundsson lýsingu.
Í kynningarefni Þjóðleikhússins er bent á að Íbúð 10B komi í kjölfar kvikmyndarinnar Snertingar „sem hlaut einróma lof þegar hún var frumsýnd hér á landi og alls 10 Edduverðlaun í mars. Myndin hefur einnig fengið frábærar viðtökur erlendis og hlotið afar lofsamlega dóma erlendra gagnrýnenda. Það er því mikið tilhlökkunarefni að Baltasar og Ólafur Jóhann ætli aftur að vinna saman og að þessu sinni í Þjóðleikhúsinu.
Þeir Ólafur Jóhann og Baltasar eiga báðir magnaðan feril að baki um allan heim. Bækur Ólafs Jóhanns hafa notið mikilla vinsælda jafnt hér heima sem utan landsteinanna og kvikmyndir og sjónvarpsþáttaraðir Baltasars hafa notið vinsælda og sópað að sér verðlaunum víða um heiminn. Þetta er fyrsta sýning Baltasars í leikhúsi um árabil en hann hefur áður m.a. sett upp rómaðar og margverðlaunaðar sýningar í Þjóðleikhúsinu,“ segir í tilkynningunni og vísað til leikstjórnar Baltasars í Þjóðleikhúsinu á leiksýningunum Leitt hún skyldi vera skækja (1996), Hamlet (1997), RENT (1999), Draumur á Jónsmessunótt (2000), Þetta er allt að koma (2004), Pétur Gautur (2006) og Ívanov (2007), en hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir leikstjórn sína á Þetta er allt að koma og Pétri Gaut. silja@mbl.is
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.