Átta sakfelldir í máli Kim Kardashian

Kim Kardashian (t.v) yfirgefur dómsalinn ásamt móður sinni Kris Jenner …
Kim Kardashian (t.v) yfirgefur dómsalinn ásamt móður sinni Kris Jenner (t.h.) á dögunum. AFP

Átta voru í dag sak­felld­ir og tveir sýknaðir í máli er teng­ist Kar­dashi­an-rán­inu, vopnuðu ráni sem framið var í Par­ís árið 2016, þar sem banda­ríska raun­veru­leika­stjarn­an Kim Kar­dashi­an var fórn­ar­lambið.

Hin 44 ára Kar­dashi­an, raun­veru­leika­stjarna og frum­kvöðull, sagðist fyr­ir dómi hafa ótt­ast um líf sitt kvöldið ör­laga­ríka. Menn­irn­ir réðust grímu­klædd­ir inn á hót­el­her­bergi henn­ar, bundu sam­an í hend­ur og fæt­ur, límdu fyr­ir munn henn­ar og komu henni fyr­ir í baðkari meðan þeir létu greip­ar sópa um íbúðina sem hún dvaldi í yfir tísku­vik­una í Par­ís haustið 2016.

Stálu ræn­ingjarn­ir þar verðmæt­um skart­grip­um sem metn­ir eru á 10 millj­ón­ir evra, um 1,3 millj­arða ís­lenskra króna. Meiri­hluti þýf­is­ins hef­ur aldrei fund­ist.

Sjö menn og ein kona voru sak­felld ým­ist fyr­ir beina þátt­töku eða sam­sekt í rán­inu. Þau voru dæmd í þriggja til átta ára fang­elsi en sak­sókn­ari hafði farið fram á 10 ára fang­elsis­vist, þyngsta mögu­lega dóm­inn í Frakklandi fyr­ir slíkt af­brot.

Þetta þýðir að ekk­ert þeirra mun þurfa að snúa aft­ur í fang­elsi, þar sem þau hafa þegar afplánað dóm sinn í varðhaldi. Tveir karl­ar voru sýknaðir. Menn­irn­ir átta eru á aldr­in­um 35-79 ára og kon­an 79 ára.

Aom­ar Ait Khedache er aðalsak­born­ing­ur í mál­inu og játaði hann sök en neitaði því að vera höfuðpaur í mál­inu.

„Ég fyr­ir­gef þér fyr­ir það sem hef­ur gerst en það breyt­ir ekki til­finn­ing­un­um, áfall­inu og hve mikið líf mitt breytt­ist,“ sagði Kar­dashi­an eft­ir að hafa fengið af­sök­un­ar­beiðni í bréfi frá Khedache.

„Ég trúi að all­ir eigi skilið annað tæki­færi,“ bætti raun­veru­leika­stjarn­an við. Sjálf lauk hún ný­lega prófi í lög­fræði eft­ir sex ára nám.

Ann­ar sak­born­ing­ur í mál­inu, maður að nafni Yunice Abbas, skrifaði bók um ránið sem hann titlaði Ég rændi Kim Kar­dashi­an.

Í bók­inni lýs­ir hann hvernig bak­pok­inn hans fest­ist í dekk­inu á reiðhjól­inu sem hann notaði til að flýja vett­vang. Hann hefði þá dottið og í flýti komið þýf­inu af göt­unni aft­ur í bak­pok­ann.

Í rétt­ar­höld­un­um í apríl sagðist hann sjá eft­ir að hafa tekið þátt í rán­inu. Þetta til­tekna rán hefði verið „einu ráni of mikið“ og „opnað augu hans fyr­ir mis­gjörðum sín­um“.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vatnsberi

Sign icon Fyrir jafn félagslynda manneskju og þig virðist einvera stundum jafnast á við einhvers konar alheimsvíti. Reyndu að einbeita þér að verkefnum sem þú þarf að leysa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Moa Hern­gren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vatnsberi

Sign icon Fyrir jafn félagslynda manneskju og þig virðist einvera stundum jafnast á við einhvers konar alheimsvíti. Reyndu að einbeita þér að verkefnum sem þú þarf að leysa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Moa Hern­gren