Björgvin Franz æfði sig í 30 ár

Björgvin Franz leikur Elsu Lund í stórsýningunni Þetta er Laddi.
Björgvin Franz leikur Elsu Lund í stórsýningunni Þetta er Laddi. Ljósmynd/Borgarleikhúsið

Í nýju stór­sýn­ing­unni Þetta er Laddi stíg­ur leik­ar­inn Björg­vin Franz Gísla­son á svið sem hin lit­ríka Elsa Lund, hlut­verk sem hann seg­ist hafa und­ir­búið sig fyr­ir í meira en 30 ár og hef­ur nú verið til­nefnd­ur til Grímu­verðlaun­anna fyr­ir leik­inn.

Ást við fyrstu sýn 

Björg­vin var aðeins tíu ára gam­all þegar hann sá Elsu Lund verða til á heim­ili for­eldra sinna, leik­ara­hjón­anna Eddu Björg­vins­dótt­ur og Gísla Rún­ars Jóns­son­ar. 

„Ég man eft­ir þeim niðri í kjall­ara að prófa gervi eða radd­ir og svo skrifa allt grínið niður jafnóðum,“ rifjar hann upp.

„Laddi var gjarn­an á staðnum að vinna með þeim grí­n­efni og ég gleymi aldrei þegar Elsa Lund mætti á svæðið: Guð minn góður, ég elskaði hana og ég fór strax að reyna að herma eft­ir henni.“

Björgvin var aðeins tíu ára gamall þegar hann sá fyrst …
Björg­vin var aðeins tíu ára gam­all þegar hann sá fyrst Elsu Lund verða til. Ljós­mynd/​Borg­ar­leik­húsið

Dreymt um hlut­verkið í þrjá­tíu ár

Heim­ur­inn fékk fyrstu sýn á Björg­vin sem Elsa á grímu­bún­inga­balli 5. bekkj­ar Aust­ur­bæj­ar­skóla.

„Í raun fékk ég svo mikla þrá­hyggju af Elsu að ég heimtaði að leika hana á grímu­bún­inga­balli 5. bekkj­ar í Aust­ur­bæj­ar­skóla. Ég reddaði mér hár­kollu, leður­jakka, gervitönn­um frá mömmu og perlu­festi hjá ömmu. Svo málaði ég fjólu­blá­an augnskugga, mætti á svæðið og vann keppn­ina.“

Eft­ir þenn­an flutn­ing var ekki aft­ur snúið og því mætti segja að Björg­vin sé bú­inn að vera að und­ir­búa mig fyr­ir hlut­verk Elsu í meira en 30 ár.

Björgvin lék Elsu Lund á grímubúningaballi 5. bekkjar í Austurbæjarskóla.
Björg­vin lék Elsu Lund á grímu­bún­inga­balli 5. bekkj­ar í Aust­ur­bæj­ar­skóla. Ljós­mynd/​Borg­ar­leik­húsið

Hlut­verkið fær lof og til­nefn­ingu

Áralöng þrá­hyggja Björg­vins skilaði sér þegar hann var ný­verið til­nefnd­ur til Grímu­verðlauna sem leik­ari árs­ins í auka­hlut­verki fyr­ir túlk­un sína á Elsu Lund. Leik­ritið Þetta er Laddi hlaut alls þrjár til­nefn­ing­ar og verður sýnd áfram á stóra sviði Borg­ar­leik­húss­ins á vormiss­eri.

Þetta er Laddi verður sýnd áfram á Stóra sviði Borgarleikhússins …
Þetta er Laddi verður sýnd áfram á Stóra sviði Borg­ar­leik­húss­ins á vormiss­eri. Ljós­mynd/​Borg­ar­leik­húsið
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Meyja

Sign icon Allt hópsamstarf rennur fram sem lygnt fljót. Sæktu í vin þegar ekki stendur vel á og sjáðu hvað hann umbreytir þér og þeim sem eru í kringum þig.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Meyja

Sign icon Allt hópsamstarf rennur fram sem lygnt fljót. Sæktu í vin þegar ekki stendur vel á og sjáðu hvað hann umbreytir þér og þeim sem eru í kringum þig.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup