Íranski leikstjórinn Jafar Panahi vann gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes um helgina.
Sigurverkið, Yek tasadef sadeh („Þetta var bara slys“), fjallar um fimm Írana sem sem ræna manni sem þau telja vera vörðinn sem pyntaði þá í fangelsi. Myndin tekst á við þá siðklemmu hvort fólk grípi gæsina þegar það fær tækifæri á að hefna sín á kúgara sínum.
Panahi var bannað frá því að framleiða myndir árið 2010 og hefur verið fangelsaður tvisvar. „Leggjum til hliðar öll vandamál, allan mismun. Það sem skiptir máli núna er landið okkar og frelsi okkar lands,“ sagði Panahi, gáfnaljós nýrrar bylgju kvikmyndagerðar í Íran, er hann flutti þakkarræðu sína á Cannes-hátíðinni í gær.
Meðal fleiri sigurvegara eru Wagner Moura, best þekktur fyrir að leika Pablo Escobarí Narcos, hlaut Cannes verðlaun fyrir leik sinn í brasilísku myndinni O Agente Secreto („Leyniþjónustumaðurinn“).
Besta leikkonan var hin franska Nadia Melliti, sem hlaut verðlaun fyrir leik sinn í La Petite Dernière („Litla systirinn“).
Tíkin Panda, sem fer með hlutverk í mynd Hlyns Pálmasonar, Ástin sem eftir er, hlaut sérstök verðlaun fyrir bestu frammistöðu í kvikmynd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi. Panda er í eigu föður leikstjórans.
Íslenska myndin hlaut afar góðar viðtökur en vann þó ekki til verðlauna. Hún er jafnframt fyrsta íslenska kvikmyndin sem valin er í Premiere-flokk hátíðarinnar.