Stríð Birgittu og Enoks gert upp

Birgitta Líf og Enok Vatnar.
Birgitta Líf og Enok Vatnar. Samsett mynd.

Sam­fé­lags­miðlastjarn­an Birgitta Líf Björns­dótt­ir og fyrr­ver­andi kær­asti henn­ar, sjó­maður­inn Enok Vatn­ar Jóns­son, vöktu mikla at­hygli net­verja um helg­ina. Birgitta og Enok hættu sam­an fyrr á þessu ári, eft­ir tæp­lega þriggja ára sam­band, og eiga sam­an einn son, Birni Boða Enoks­son, sem ný­verið varð eins árs.

Birgitta er nú stödd í Suður-Frakklandi í vin­konu­ferð með hinum svo­kallaða LXS-vin­konu­hópi. Vin­kon­urn­ar hafa deilt fjölda mynda og mynd­banda frá ferðalag­inu á sam­fé­lags­miðlum. 

Eitt TikT­ok-mynd­band sem Ástrós Trausta­dótt­ir birti vakti sér­stak­lega mikla at­hygli. Í því mynd­bandi labb­ar Birgitta sjálfs­ör­ugg um­kringd vin­kon­um sín­um sem hvetja hana áfram á hliðarlín­unni. Und­ir er lagið Let Me Love You með söng­kon­unni Ari­ana Grande þar sem hún seg­ir: „I just broke up with my ex“ sem þýðir „Ég var að hætta með kær­ast­an­um mín­um.“

„Settu fransk­arn­ar í pok­ann“ 

Um­mæli sem Enok lét falla í at­huga­semd­um und­ir mynd­band­inu voru mjög um­deild meðal al­menn­ings en þar skrifaði hann:

 „Settu fransk­arn­ar í pok­ann.“ 

Um er að ræða slang­ur­yrði sem notað er til að niður­lægja og gefa í skyn að viðkom­andi ætti ein­fald­lega að þegja og sinna sínu. Viðskipta­vin­ur á skyndi­bitastað segi starfs­manni að ein­beita sér að því að setja fransk­arn­ar í poka í stað þess að spjalla.

Enok varð fyr­ir mik­illi gagn­rýni

At­huga­semd Enoks féll í grýtt­an jarðveg og fjöl­marg­ir net­verj­ar hafa gagn­rýnt orðalagið harðlega. Marg­ir tóku upp hansk­ann fyr­ir Birgittu Líf í at­huga­semda­kerf­inu: 

„Þetta er kon­an sem gekk með son þinn í 9 mánuði. Hvernig líður þér í gler­hús­inu þínu?“ 

Önnur skrifaði: „Elska hvað þú fatt­ar ekki hversu lítið þú ert að gera úr sjálf­um þér akkúrat núna - ab­solu­te cinema.“

Lét ekki kyrrt liggja

Enok lét ekki kyrrt liggja þrátt fyr­ir gagn­rýni í at­huga­semd­um og birti mynd­band þar sem hann set­ur sjálf­ur fransk­ar í poka eft­ir að ganga út af skyndi­bitastað.

Þessi uppá­koma Enoks féll hins veg­ar held­ur ekki vel í kramið hjá net­verj­um. Einn þeirra líkti hegðun Enoks við rapp­ar­ann Kanye West eft­ir skilnað hans við raun­veru­leika­stjörn­una Kim Kar­dashi­an og sagði:

„It’s gi­ving Kanye eft­ir skilnaðinn við Kim.“

Í Taílandi að huga að heils­unni

Í at­huga­semd við eigið mynd­band upp­lýsti Enok að hann væri stadd­ur í Taílandi. Hann seg­ist vera þar til að æfa, huga að heils­unni og ná smá ró.

„Þetta er ekki frí, þetta er nauðsyn­legt re­set,“ skrifaði Enok og bætti við að ferðin væri liður í því að gera hann að betri og sterk­ari mann­eskju og meira nærstadd­an fyr­ir fjöl­skyldu sína.

Fólki leidd­ist ekki um helg­ina

Það fer ekki leynt að fólk hef­ur lúmskt gam­an af drama­tík­inni ef marka má sam­fé­lags­miðla. Nokkr­ir hafa gert góðlát­legt grín að orðræðu Enoks.

Gerður Huld Ar­in­bjarn­ar­dótt­ir, at­hafna­kona og eig­andi kyn­líf­stækja­versl­un­ar­inn­ar Blush, birti mynd af sér þar sem hún ligg­ur uppi í rúmi með slatta af frönsk­um og skrif­ar: „Eng­ar fröll­ur í poka hérna“.

Hér að neðan má sjá dæmi um viðbrögð net­verja á TikT­ok.

Læt­ur þetta ekki á sig fá

Birgitta Líf hef­ur sjálf haldið ró sinni og ekki tjáð sig beint um dramað. Á sam­fé­lags­miðlum virðist hún ein­beita sér að því að njóta frís­ins með vin­kon­um sín­um. Um helg­ina fóru þær meðal ann­ars á Formúlu 1-kapp­akst­ur­inn í Mónakó og Birgitta hef­ur deilt gleðistund­um þaðan á eig­in miðlum. Allt bend­ir til þess að Birgitta láti þetta fía­skó ekki á sig fá.





v

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Steingeit

Sign icon Ábyrgðartilfinningin er sterk, en vertu viss um að hvíla þig líka. Líkamleg og andleg orka eru samtvinnuð. Hlustaðu á líkama þinn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
2
Eva Björg Ægis­dótt­ir
5
Mohlin & Nyström
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Steingeit

Sign icon Ábyrgðartilfinningin er sterk, en vertu viss um að hvíla þig líka. Líkamleg og andleg orka eru samtvinnuð. Hlustaðu á líkama þinn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
2
Eva Björg Ægis­dótt­ir
5
Mohlin & Nyström