Samtökin Læti!, sem áður hétu Stelpur rokka!, standa fyrir raftónlistarbúðum 29. og 31. maí og 1. júní og að þeim loknum verður hlustunarpartí og fer það fram 2. júní.
Búðirnar eru ætlaðar ungu fólki á aldrinum 15 til 20 ára og munu þátttakendur fá leiðsögn um raftónlist og gerð hennar, læra að semja tónlist í forritinu Ableton Live og þeyta skífum. Einnig geta þátttakendur sungið og rappað inn á lögin sín, ef þeir svo kjósa.
Markmiðið með þessum búðum eða námskeiði er að jafna aðgengi stúlkna og jaðarsettra kynja að raftónlist, að því er fram kemur í tilkynningu. Segir í henni að hugmyndin hafi kviknað í kjölfar raftónlistarnámskeiða Jónínu Rebekku Alfreðsdóttur á nýliðnum vetri. Voru þau ætluð fullorðnum en nú er komið að 15 til 20 ára.
Búðirnar fara fram bæði á íslensku og ensku og eru engar kröfur gerðar um þekkingu þátttakenda á tónlist. Verða þær haldnar í Tónlistarmiðstöð Læti! í Fellaskóla í Breiðholti og hlustunarpartí verður einnig haldið í sama húsi.
Erlendir kennarar verða á námskeiðinu og eru þeir Nor og Maya frá Noregi, Alisa frá Finnlandi og frá Serbíu þær Nevena og Mia. Mia er serbnesk en býr og starfar í Austurríki.
Esther Ýr Þorvaldsdóttir hefur séð um framkvæmdastjórn samtakanna í tvö ár og segist alltaf hafa verið með annan fótinn í tónlistarbransanum, m.a. sem kynningarstjóri fyrir Senu og Senu Live. Hún segir nafni Stelpur rokka! hafa verið breytt í Læti! til að ná til fleira fólks en aðeins kvenna. Enda segir á vef samtakanna að Læti! eigi að búa til öruggara rými og valdeflandi fyrir stelpur og einstaklinga sem tilheyra jaðarsettum kynjum. Esther segir að starf samtakanna hafi ekkert breyst með þeirri nafnbreytingu.
Læti! á í samskiptum við sambærileg samtök í mörgum löndum og segir Esther að fyrir þessar tilteknu raftónlistarbúðir verði fengnir kennarar að utan, frá Noregi, Finnlandi og Serbíu.
„Það verður rosalega gaman fyrir þátttakendur að víkka sitt tengslanet, í sínum fyrstu skrefum í raftónlistargerð,“ segir Esther. Annað verkefni nefnir hún, rokkbúðir í Tógó í Vestur-Afríku sem samtökin standa að með samstarfsaðila sínum þar í landi. „Ég er nýkomin heim þaðan,“ segir Esther og bætir við að það sé allt annað verkefni og í raun efni í annað viðtal. Hlutskipti kvenna og réttindi þeirra þar í landi mun vera ákaflega slæmt, jaðarsett kyn og samkynhneigð bönnuð og nokkuð sem má ekki minnast á, viðurkenna eða ræða. „Þannig að í þeirra samfélagi heitir þetta ennþá Girls Rock Togo,“ segir Esther. Hún hafi haldið raftónlistarnámskeið með einni samstarfskonu sinni í Tógó og á því hafi þátttakendur fengið að búa til raftónlist í fyrsta sinn á ævinni.
En aftur að raftónlistarbúðunum hér á Íslandi. Læti! eru fyrir fólk á aldrinum 15 til 20 ára og segir Esther ástæðuna fyrir þessu aldursbili þá að þessi hópur virðist hafa mestan áhuga á raftónlist. „Fyrir krakka er raftónlist að koma mjög sterk inn en kannski ekki hjá þeim allra yngstu. Við vildum búa til aldurshóp þarna sem hentaði akkúrat þessu kennsluefni. Við höfum líka ekki verið með prógramm fyrir 17 ára. Prógrammið okkar er frá 10 til 12 og 13 til 16 ára og átján ára og eldri. Þarna er eitt ár sem dettur út þannig að við vildum taka vel á móti 17 ára krökkum líka,“ segir Esther.
Þau læra að semja lög í forritinu Ableton Live, hvað geturðu sagt mér um það?
„Það er bara eitt af þessum meginforritum í raftónlistargerð í dag. Þau eru nokkur sem eru hvað stærst og Ableton Live er eitt af þeim stærstu. Allt sem þú lærir þar eru góðar líkur á að þú haldir áfram að nota, að þú haldir áfram að nota þetta forrit ef þú heldur áfram að semja raftónlist. Ef þú ákveður að skipta um forrit eru góðar líkur á að það yfirfærist vel því hin forritin eru svipuð og hugtökin sem við kennum munu nýtast áfram,“ svarar Esther. Forritið er ekki ókeypis en hægt að fá 90 daga prufuaðgang að því. „Við bjóðum upp á tölvur, gerum ekki kröfu um að þátttakendur séu með sínar eigin tölvur þó svo það megi,“ bætir hún við.
Ester segir námskeiðið m.a. henta þeim sem kjósi að vera ekki í sviðsljósinu, vilja vera bak við tjöldin en samt sem áður í skapandi starfi. „Unga fólkið getur líka unnið saman,“ segir hún um hina verðandi þátttakendur í námskeiðinu. „Við byrjum svolítið á því að kenna hugtök og koma fólki inn í málin, hvernig forritið virki og þetta er hluti af okkar kennslufræðum, að fikta og komast áfram sjálfur og skapa. Þau eiga að gera þetta svolitið sjálf og það verða margir kennarar til að hjálpa ef eitthvað tæknilegt kemur upp á eða viðkomandi biður sérstaklega um aðstoð. En annars munu þau hafa algjörlega frjálsar hendur um það hvernig þau semja lagið sitt. Við erum þarna sem stuðningur en munum aldrei segja þeim hvernig lagið á að vera.“
Í lýsingu á búðunum segir að markmiðið sé að jafna aðgengi stúlkna og jaðarsettra kynja að raftónlist sem hefur þótt ójafnt. Ester segir þetta afskaplega karllægt umhverfi, eins og staðan sé. „Ef þú lítur á fyrirmyndirnar þá vantar þær. Einu sinni fór ég upp í Tónhyl þar sem er verið að kenna svona og það var eitt námskeið í gangi. Á því voru bara unglingsstrákar, allir með Flóna-klippinguna sem þýðir að þetta er þeirra fyrirmynd og þeir sem skrá sig á þetta námskeið. Nú viljum við bjóða velkomin þau sem vilja ekki skrá sig á það námskeið heldur námskeið þar sem rýmið er öruggara fyrir svona jaðarsetta einstaklinga og kvenkyns einstaklinga sem hafa áhuga á að kynna sér þetta,“ segir Esther. Þess má að lokum geta Steinunn Jónsdóttir tónlistarkona verður einnig meðal kennara á námskeiðinu og að dagskrá má finna á laetitonlist.is.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.