Heppin að vera á lífi eftir alvarlegt mótorhjólaslys

Maria Carolina þakkaði starfsfólki spítalans og öðru heilbrigðisstarfsfólki fyrir vel …
Maria Carolina þakkaði starfsfólki spítalans og öðru heilbrigðisstarfsfólki fyrir vel unnin störf. Skjáskot/Instagram

Ítalska prins­ess­an Maria Carol­ina af Bour­bon-Deux Sicilies seg­ist vera hepp­in að vera á lífi eft­ir að hún lenti í al­var­legu mótor­hjóla­slysi í Mónakó nú á dög­un­um.

Hin 21 árs gamla Maria Carol­ina sagði frá slys­inu í færslu á In­sta­gram-síðu sinni í gær­dag og birti nokkr­ar mynd­ir af sér liggj­andi í sjúkra­rúmi, tengd við hin ýmsu tæki.

Í færsl­unni tek­ur hún sér­stak­lega fram að hjálm­ur­inn hafi bjargað lífi henn­ar.

„Ég er ótrú­lega hepp­in að vera á lífi. Ég lenti í árekstri á mótor­hjóli og skall með höfuðið á vegg og endaði á gjör­gæslu­deild. Það er ekk­ert annað en krafta­verk að ég sé á lífi. Vin­sam­leg­ast farið var­lega og notið hjálm. Hann bjargaði lífi mínu,” skrif­ar prins­ess­an meðal ann­ars við færsl­una.

Maria Carol­ina er elsta dótt­ir Car­lo prins og Camillu prins­essu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Fiskar

Sign icon Hrósaðu þeim sem eiga það skilið, ekki síst ef það ert þú sjálfur sem átt í hlut. Reyndu að koma skikki á hlutina og skila því starfi sem þér er ætlað.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Fiskar

Sign icon Hrósaðu þeim sem eiga það skilið, ekki síst ef það ert þú sjálfur sem átt í hlut. Reyndu að koma skikki á hlutina og skila því starfi sem þér er ætlað.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup