Blake Lively dregur úr fullyrðingum

Ryan Reynolds og Blake Lively í New York í febrúar.
Ryan Reynolds og Blake Lively í New York í febrúar. DIMITRIOS KAMBOURIS/AFP

Leik­kon­an Bla­ke Li­vely er sögð gera til­raun­ir til að taka út full­yrðing­ar þess efn­is að leik­ar­inn og leik­stjór­inn Just­in Baldoni hafi valdið henni til­finn­inga­legri van­líðan á meðan á gerð kvik­mynd­ar­inn­ar It Ends With Us stóð, sam­kvæmt dóms­kjöl­um sem tíma­ritið Page Six hef­ur und­ir hönd­um.

Þessi vend­ing kem­ur beint í kjöl­far þess að lög­fræðing­ar Baldon­is óskuðu eft­ir að hún skrifaði und­ir samþykki er varðaði aðgang þeirra að lækn­is- og geðheil­brigðis­gögn­um henn­ar.

Lög­fræðiteymi Baldon­is árétt­ar mik­il­vægi gagn­anna sam­an­ber ásak­an­ir leik­kon­unn­ar um að Baldoni hafi valdið henni veru­legri and­legri van­líðan, líkt og fram kom í lög­sókn á hend­ur hon­um í des­em­ber 2024.

Rétt­ur­inn mun skera úr um hvort beiðni Li­vely verði samþykkt.

Börn­in líka í áfalli

Lög­fræðing­ar Li­vely segja hins veg­ar op­in­ber­lega að teymi Baldon­is leit­ist eft­ir fjöl­miðlaat­hygli og að leik­kon­an muni halda and­legri van­líðan til streitu sem hluta af fjölda annarra krafna í máli henn­ar.

Li­vely, sem er 37 ára, sak­ar Baldoni, 41 árs, um að hafa valdið hjá henni al­var­legu til­finn­inga­legu áfalli, sárs­auka, niður­læg­ingu, skömm, and­leg­um kvöl­um og von­brigðum með hegðun sinni við gerð áður­greindr­ar kvik­mynd­ar. Á hann m.a. að hafa sýnt henni nekt­ar­mynd­ir af öðrum kon­um og rætt um klámfíkn sína frá fyrri tíð.

Hún sakaði hann einnig um til­raun til að eyðileggja orðspor sitt í kjöl­far ásak­an­anna. Síðar greindi Li­vely einnig frá að börn henn­ar James, tíu ára, Inez, átta ára, Betty fimm ára, og Olin, tveggja ára, hefðu einnig orðið fyr­ir áfalli vegna þessa.

Page Six

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Tvíburar

Sign icon Hlutirnir rúlla fínt núna og því er rétti tíminn til að leggja til hliðar, peninga í banka og mat í búrið. Leitaðu að hetjuskap í venjulegu fólki.
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Tvíburar

Sign icon Hlutirnir rúlla fínt núna og því er rétti tíminn til að leggja til hliðar, peninga í banka og mat í búrið. Leitaðu að hetjuskap í venjulegu fólki.