Skelfilegar afleiðingar blóðhefnda

Þröstur Leó Gunnarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Elín …
Þröstur Leó Gunnarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Elín Hall, Ebba Katrín Finnsdóttir og Benedict Andrews. Ljósmynd/Jorri

Jóla­sýn­ing Þjóðleik­húss­ins í ár er Óresteia í leik­gerð og leik­stjórn Benedicts Andrews og nýrri þýðingu Krist­ín­ar Ei­ríks­dótt­ur. Í til­kynn­ingu frá leik­hús­inu kem­ur fram að Óresteia byggi á sí­gild­um þríleik Æskí­los­ar, en forn­grísku verk­in eru flokkuð meðal höfuðverka heims­bók­mennt­anna.

„Verkið hef­ur talað með mátt­ug­um hætti til mann­kyns­ins, kyn­slóð fram af kyn­slóð, og á við okk­ur óþægi­lega ágengt er­indi í dag. Í sýn­ing­unni birt­ast okk­ur vægðarlaus átök inn­an fjöl­skyldu og skelfi­leg­ar af­leiðing­ar stríðs og blóðhefnda.“ Tekið er fram að hrist verði ræki­lega upp í ára­tuga gam­alli hefð þar sem jóla­sýn­ing­in verði ekki sýnd á Stóra sviðinu held­ur í Kass­an­um, sem bjóði upp á meira ná­vígi við áhorf­end­ur.

„Benedict Andrews hef­ur leik­stýrt marg­verðlaunuðum sýn­ing­um í mörg­um af helstu leik­hús­um heims. Sýn­ing­ar hans í Þjóðleik­hús­inu, Ex, Ell­en B., Mac­beth og Lér kon­ung­ur, hafa sann­ar­lega slegið í gegn meðal áhorf­enda og hlotið fjölda Grímu­verðlauna,“ seg­ir í til­kynn­ingu og á það bent að hann hafi hlotið mikið lof gagn­rýn­enda fyr­ir upp­færslu sína á Kirsu­berjag­arðinum en verkið var frum­sýnt í New York á ár­inu.

Leik­hóp­inn skipa ​Elín Hall, Hilm­ir Snær Guðna­son, Ebba Katrín Finns­dótt­ir, Nína Dögg Fil­ipp­us­dótt­ir og Þröst­ur Leó Gunn­ars­son. Elín Hans­dótt­ir hann­ar leik­mynd­ina, Fil­ipp­ía Ingi­björg Elís­dótt­ir bún­inga, Björn Berg­steinn Guðmunds­son lýs­ingu og Aron Þór Arn­ars­son hljóðið en Bára Gísla­dótt­ir sem­ur tón­list­ina. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er eins gott að lesa smáa letrið í öllum samningum áður en þeir eru undirritaðir. Haltu áfram því þú munt verða stoltur af þeim árangri sem þú nærð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er eins gott að lesa smáa letrið í öllum samningum áður en þeir eru undirritaðir. Haltu áfram því þú munt verða stoltur af þeim árangri sem þú nærð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup