Búið spil hjá Martin og Johnson

Martin og Johnson aftur hætt saman eftir tæplega átta ára …
Martin og Johnson aftur hætt saman eftir tæplega átta ára samband Samsett mynd

Stjörnup­arið Dakota John­son og Chris Mart­in eru far­in hvort í sína átt­ina eft­ir tæp­lega átta ára „haltu mér, slepptu mér“ sam­band.  

John­son, sem er hvað þekkt­ust fyr­ir hlut­verk sitt sem An­astasia Steele í Fifty Shades of Grey-trílógí­unni, og Mart­in, söngv­ari ensku hljóm­sveit­ar­inn­ar Coldplay, byrjuðu að stinga nefj­um sam­an árið 2017 og hef­ur sam­bandið verið upp og niður í gegn­um árin, en parið sleit meðal ann­ars trú­lof­un sinni í ág­úst í fyrra.  

Ástæða sam­bands­slit­anna er sögð ágrein­ing­ur um barneign­ir. Mart­in vildi víst eign­ast barn með John­son en leik­kon­an er sögð vilja ein­blína á leik­fer­il­inn.

Mart­in á tvö upp­kom­in börn með banda­rísku leik­kon­unni Gwyneth Paltrow, þau Apple Mart­in og Moses Mart­in.

Er hún kom­in með nýj­an?

John­son fer um þess­ar mund­ir með aðal­hlut­verk í róm­an­tísku gam­an­mynd­inni Mater­ial­ist ásamt þeim Chris Evans og Pedro Pascal.

Orðið á göt­unni er að eitt­hvað sé í gangi á milli John­son og Pascal, en sí­leski leik­ar­inn hef­ur að vísu verið bendlaður við ófá­ar Hollywood-leik­kon­ur síðustu mánuði, þar á meðal Jenni­fer Anist­on.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Meyja

Sign icon Heimurinn er leikherbergið þitt, og þar eru öll leikföngin sem þig hefur alltaf langað í. Reyndu að halda fjarlægð og yfirsýn í erfiðum málum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Meyja

Sign icon Heimurinn er leikherbergið þitt, og þar eru öll leikföngin sem þig hefur alltaf langað í. Reyndu að halda fjarlægð og yfirsýn í erfiðum málum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup