Stjörnur:
Í Listasafninu á Akureyri stendur nú yfir viðamikil sýning á verkum Þóru Sigurðardóttur. Sýningin er umfangsmikil og býður upp á skipulagt ferðalag í gegnum margþætta form- og efnisskynjun listakonunnar. Ólíkir efnisþættir og efnistök fléttast saman á sýningunni — teikning, prentverk, málverk, skúlptúr, kvikmyndun, ljósmyndun og sviðsmyndagerð – þar sem andstæður og ítrekuð þemu skapa fjölþættan myndheim.
Þóra á að baki langan og fjölbreyttan feril í listsköpun, en hún lét fyrst að sér kveða á níunda áratug síðustu aldar. Hún á sér sterkan bakgrunn í grafískum miðlum, teikningu og prentverki. Með tímanum þróaðist list hennar yfir í fjölbreyttari miðla, þar á meðal málverk, leirskúlptúra og innsetningar. Þó má segja að það sé teikningin, í víðum skilningi, sem sé kjarni listsköpunar hennar, kjarni sem teygir anga sína í ólíkar áttir.
Í fyrsta salnum er uppstilling málverka á veggjum og sýningarkassa með grafíkverkum. Málverkin sýna reglubundin form sem endurtaka sig á taktvissan hátt með tilbrigðum. Þetta eru fínleg verk þar sem flöturinn og skipan hans mynda áhugaverða heild. Þessi verk eiga í samtali við verkin í sýningarkössunum en þar eru litaðar ætingar þar sem prentplöturnar eru endurnýttar til að skapa tilbrigði sem samsvara málverkunum. Sýningarkassarnir eru í reynd hluti verkanna, þeir ramma þau inn og staðsetja á láréttum fleti þannig að pappírinn nýtur sín sem og áherslur prentsins.
Þegar komið er inn í meginsalinn blasir við innsetning sem er í raun sérsmíðað sýningarkerfi en þar má sjá svartar hillustoðir sem skapa gang í gegnum salinn. Á hillunum er fjölbreytt safn ólíkra muna. Sumt er greinilega fundið efni og form úr ólíkum áttum svo sem trélistar, snæri og járnrör. Í bland við þessa hluti er skipað formum úr leir og þráðum. Þessum hlutum er vandlega raðað upp í sýningarkerfinu en tengingar á milli þeirra eru greinilega tilfinningalegar. Hér er verið að skapa hughrif uppgötvunarinnar með uppröðun áferða og efna sem við fyrstu sýn eiga ekki saman. Þessi innsetning minnir helst á Wunderkammer átjándu og nítjándu aldar, þar sem safnarar sýndu alla þá frábæru hluti sem þeir höfðu safnað á ferðum sínum um heiminn. Wunderkammer Þóru er hins vegar persónulegt, formrænt skipulag sem mótar eins konar frásögn í rýminu.
Að baki megininnsetningarinnar í meginsalnum er myndröðum raðað á veggina; stórum grafíkverkum, ætingum og málverkum þar sem reglubundið samspil láréttra og lóðréttra áherslna mótar kerfisbundna myndheild. Hér er reglufestu og undrum spilað saman, nokkuð sem er einkenni sýningarinnar í heild.
Inn af meginsalnum taka við nokkur myrkvuð rými. Fyrst blasa við áhorfendum nokkur málverk sem byggjast á sterkri rúðuskipan en þetta eru reglubundnustu málverk sýningarinnar. Inn af þeim er annað rými þar sem ljós með handgerðum skermum lýsa upp sýningarkassa. Hér er komin önnur útgáfa af dulúðugu Wunderkammer þar sem ljósmyndir, teikningar, grafíkþrykk og leirmunir skapa einhvers konar huglæg landakort eða hugmyndakerfi sem áhorfanda býðst að skoða og upplifa sem lífræna heild.
Lokaáfanginn á ferð í gegnum sýninguna er kvikmyndaverk í dimmum sal. Efniviður kvikmyndarinnar vekur hughrif um kosmíska ólgu þar sem áhorfandinn sér gagnsæjar blæjur í einhvers konar hvirfilhreyfingu með síbreytilegum formum. Þessi lokahluti sýningarinnar kallast á við stór ljósmyndaverk við innganginn þar sem sams konar form koma fyrir. Uppruni þessara verka er óljós við fyrstu sýn. Það kemur því á óvart þegar í ljós kemur að í reynd er hér er um hversdagslega hluti að ræða sem Þóra hefur rekist á og nýtt sér á skapandi hátt. Þetta eru nefnilega himnur úr sláturúrgangi sem eru á hreyfingu í þvottavél, sem sagt afar hversdaglegt lífrænt efni sem fær á sig kosmíska vídd í meðförum Þóru.
Sýning Þóru er í reynd fjölbreytt ferðalag um þann fjölþætta myndheim sem hún hefur skapað á löngum ferli sínum. Hér má finna fundna hluti og ummyndanir sem skapa hugmyndaheim í samspili við stærðfræðilega útfærðar og reglufastar myndir. Reglufestan og óreiðan eiga í stöðugu samspili í skipulega sviðsettri sýningu þar sem áhorfandanum er boðið upp á taktfasta endurtekningu í samspili við handahófskenndar lífrænar vísanir.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.
Stjörnur: