Barn leikaranna Völu Kristínar Eiríksdóttur og Hilmis Snæs Guðnasonar er komið í heiminn.
Í færslu á Instagram-síðu Völu Kristínar birtist mynd rétt í þessu af hvítvoðungi. Undir myndina er skrifað „og allt er breytt,“ með meðfylgjandi hjartatjákni.
Barnið er stúlka en þau greindu frá kyni þess í byrjun maímánaðar.
Stúlkan er fyrsta barn Völu Kristínar en fyrir á Hilmir Snær tvær dætur úr fyrri samböndum.
Parið byrjaði saman árið 2023 og vakti aldursmunur þeirra athygli en Vala er fædd árið 1991 og Hilmir árið 1969.