Sly Stone, brautryðjandi í funk- og rokktónlist og aðalsöngvari hljómsveitarinnar Sly and the Family Stone, er látinn, 82 ára að aldri. BBC greinir frá.
Sly Stone, sem hét í raun Sylvester Stewart, hóf feril sinn sem plötusnúður í San Francisco og stofnaði hljómsveitina Sly and the Family Stone ásamt systkinum sínum.
Hljómsveitin verð feikivinsæl og spilaði meðal annars á hinum goðsagnakenndu Woodstock-tónleikum árið 1969 og á Summer of Soul-hátíðinni í Harlem sama ár.
Meðal helstu laga hljómsveitarinnar eru til dæmis lögin If You Want Me to Stay og Everyday People.
Á áttunda áratugnum dró svo úr tónleikahaldi hjá hljómsveitinni eftir fíkniefnavanda og innanbúðar ágreininga.
Hljómsveitin var tekin inn í frægðarhöll rokksins eða „Rock and Roll Hall of Fame“ árið 1993.