Kaleo heldur stórtónleika á Íslandi í júlí

Kaleo heldur sína fyrstu stórtónleika á Íslandi í tíu ár.
Kaleo heldur sína fyrstu stórtónleika á Íslandi í tíu ár. Ljósmynd/Aðsend

Stór­hljóm­sveit­in Kal­eo held­ur sína fyrstu stór­tón­leika á Íslandi í tíu ár, laug­ar­dag­inn 26. júlí, í Vagla­skógi í Fnjóska­dal. Heils­dagsviðburður mun vera ráðgerður með fjöl­mörg­um ís­lensk­um tón­list­ar­stjörn­um.

Hug­mynd­in að tón­leik­un­um er sprott­in beint úr höfði Jök­uls Júlí­us­son­ar, forsprakka Kal­eo, en lag með sama heiti var það fyrsta sem kom Kal­eo á kortið hér­lend­is, samið af Kristjáni frá Djúpa­læk skáldi og Jónasi Jónas­syni fyrr­um út­varps­stjóra. 

Vagla­skóg­ur er sem kunn­ugt er í fimmtán mín­útna akst­urs­leið frá Ak­ur­eyri eft­ir að Vaðlaheiðargöng opnuðu og má ætla að mik­ill fjöldi aðdá­enda Kal­eo og fleiri muni vilja leggja leið sína í skóg­inn á þess­um sum­ar­degi.

Miðasala hefst í næstu viku á síðunni Key to Ice­land og er tak­markað magn af miðum í boði.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vog

Sign icon Hugsanlegt er að óljósar efasemdir læðist að þér í dag. Láttu einskis ófreistað til þess að leysa það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vog

Sign icon Hugsanlegt er að óljósar efasemdir læðist að þér í dag. Láttu einskis ófreistað til þess að leysa það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup