Lively ætlar að standa með sér

Bake Lively heldur áfram í réttarbaráttu sinni gegn Justin Baldoni.
Bake Lively heldur áfram í réttarbaráttu sinni gegn Justin Baldoni. AFP/Michael Loccisano

Gossip Girl-stjarn­an, Bla­ke Li­vely, virt­ist hæst­ánægð þegar hún gekk út af Chanel Tri­beca Festi­val lista­manna­kvöld­verðinum skömmu eft­ir að 400 millj­ón dala mál­sókn Just­in Baldon­is gegn henni og eig­in­manni henn­ar, Ryan Reynolds, var vísað frá dómi af dóm­ar­an­um Lew­is J. Lim­an í New York-ríki í Banda­ríkj­un­um.

Laga­leg­ur ágrein­ing­ur milli þeirra hófst seint á sein­asta ári þegar hún lagði fram kæru á hend­ur Baldoni sem var leik­stjóri og mót­leik­ari henn­ar í kvik­mynd­inni It Ends With Us. Þar sakaði hún hann um kyn­ferðis­lega áreitni. Baldoni hafnaði öll­um ásök­un­um og höfðaði í kjöl­farið mál gegn Li­vely. 

Leik­kon­an, sem er 37 ára og er þekkt­ust fyr­ir hlut­verk sitt í þáttaröðinni Gossip Girl, tjáði sig um úr­sk­urðinn í gær á In­sta­gram-reikn­ingi sín­um.

Þar seg­ist hún vera staðráðnari en nokkru sinni fyrr í því að standa með rétti kvenna til að láta í sér heyra og standa uppi fyr­ir sér sjálf­um.

Blake Lively segist staðráðnari en nokkru sinni fyrr að standa …
Bla­ke Li­vely seg­ist staðráðnari en nokkru sinni fyrr að standa með rétti kvenna til að láta í sér heyra. Skjá­skot/​In­sta­gram

Lög­menn Li­vely segja við Page six að þeir muni krefjast máls­kostnaðar, þre­faldra skaðabóta og miska­bóta frá Baldoni vegna þess sem þeir kalla „áreit­ismála­rekst­ur.“

Lög­menn Baldoni hafa enn ekki tjáð sig um málið.

Sami dóm­ari vísaði einnig 250 millj­ón dala meiðyrðamál­sókn Baldon­is gegn New York Times frá dómi í des­em­ber 2024, þar sem miðill­inn fjallaði um til­kynn­ingu Li­vely um kyn­ferðis­lega áreitni af hálfu Baldon­is. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Sporðdreki

Sign icon Þú átt eftir að þurfa að læra að slaka á fyrr eða síðar. Leggðu þig fram um að ná samkomulagi í gömlu deilumáli sem er tímabært að koma frá
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
5
Moa Hern­gren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Sporðdreki

Sign icon Þú átt eftir að þurfa að læra að slaka á fyrr eða síðar. Leggðu þig fram um að ná samkomulagi í gömlu deilumáli sem er tímabært að koma frá
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
5
Moa Hern­gren