„Ég trúi ekki að maðurinn minn hafi gert þetta“

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Hin ís­lenska Ása Guðbjörg Ell­erup, sem er gift hinum meinta fjölda­morðingja Rex Heu­er­mann, kem­ur fram í fyrsta sinn í heim­ildaþáttaröðinni The Gil­go Beach Killer: Hou­se of Secrets sem sýnd er í Sjón­varpi Sím­ans Premium. Þetta er í fyrsta skipti sem Ása opn­ar sig eft­ir að eig­inmaður­inn var hand­tek­inn og ákærður fyr­ir morð á ung­um kon­um. Hún fékk 126.000.000 kr. fyr­ir að koma fram í þátt­un­um.  

    Þáttaröðin The Gil­go Beach Killer: Hou­se of Secrets hef­ur vakið mikla at­hygli und­an­farna daga, ekki síst vegna viðtals­ins við Ásu og dótt­ir henn­ar, Vict­oríu, sem tjá sig í fyrsta sinn um áfallið sem fylgdi því að fjöl­skyldu­föður­inn og arki­tekt­inn Rex Heu­er­mann var hand­tek­inn í júlí 2023 og ákærður fyr­ir morðin. Þær tala op­in­skátt um líf sitt, bæði fyr­ir og eft­ir að Rex var hand­tek­inn.

    Ása rifjar upp fyrstu kynni sín af hon­um og hvernig hann hjálpaði henni að kom­ast í gegn­um erfiðan skilnað. Mæðgurn­ar rifja meðal ann­ars upp heim­sókn­ir til Íslands og önn­ur ferðalög þeirra en Rex er sakaður um að hafa nýtt tím­ann þegar fjöl­skyld­an var að ferðast til að kaupa sér vænd­isþjón­ustu og myrða vænd­is­kon­urn­ar.

    Fram­leiðslu­fyr­ir­tæki þátt­anna er í eigu rapp­ar­ans Curt­is „50 Cent“ Jackson en það fékk óheft­an aðgang að fjöl­skyld­unni og heim­il­inu sem mikið hef­ur verið fjallað um í fjöl­miðlum. Birt eru viðtöl þá sem þekkja Rex Heu­er­mann best, þar á meðal Ásu og Victoriu, auk þess sem rætt er við besta vin hins meinta fjölda­morðingja og fjölda rann­sókn­ar­blaðamanna sem hafa fylgst grannt með fram­vindu máls­ins.

    The Gil­go Beach Killer: Hou­se of Secrets er í þrem­ur þátt­um. 

    mbl.is
    Fleira áhugavert

    Stjörnuspá »

    Krabbi

    Sign icon Það er engin ástæða til þess að fela allar sínar tilfinningar. Allt sem tengist heilbrigðiskerfinu eða skemmtanaiðnaði er heppilegt.
    síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
    1
    Stein­dór Ívars­son
    3
    Moa Hern­gren
    4
    Torill Thorup
    Fleira áhugavert

    Stjörnuspá »

    Krabbi

    Sign icon Það er engin ástæða til þess að fela allar sínar tilfinningar. Allt sem tengist heilbrigðiskerfinu eða skemmtanaiðnaði er heppilegt.
    síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
    1
    Stein­dór Ívars­son
    3
    Moa Hern­gren
    4
    Torill Thorup