„Það er auðvitað ógnvekjandi að hugsa út í það hvað við munum í raun dvelja stutt á þessari jörð, en fegurðin liggur líka í þessari djúpu tímavitund, í smæð okkar gagnvart tímanum,“ segir Sabina Westerholm, forstöðumaður Norræna hússins, í samtali við Morgunblaðið. Hún er sýningarstjóri samsýningarinnar Time After Time sem var nýverið opnuð í Hvelfingu Norræna hússins.
Á sýningunni má líta verk eftir fimm norræna listamenn sem eru Anastasia Ax, Felipe de Ávila Franco, Jussi Kivi, Saara Ekström og Sandra Mujinga. Þau eiga það sameiginlegt að fást við viðfangsefni á borð við „náttúru og orku, tíma og sjónarhorn, ljós og myrkur og mennska nærveru og fjarveru,“ eins og fram kemur í sýningarskrá. Þar segir einnig að sýningin „bjóði vonarneista á tímum sem markaðir eru af stríðsátökum, náttúruhamförum og vistmorðum“.
Spurð til að byrja með hvort hún sé aðdáandi Cindy Lauper svarar Sabina hlæjandi: „Já, að sjálfsögðu. Lagið hennar „Time After Time“ er ástarlag og það fannst mér viðeigandi fyrir sýninguna. Hún er nefnilega rómantísk. Sumum finnst viðfangsefnið áreiðanlega dapurlegt en fyrir mér er sýningin ástaróður til plánetunnar. Vegna þess að það er von fólgin í því að sama hvað verður um okkur mannkynið muni jörðin finna aðferðir til að lifa af. Það finnst mér að minnsta kosti falleg tilhugsun þó að hún sé auðvitað líka drungaleg. Við höfum okkar stutta tíma hér en tími jarðarinnar er lengri. Þetta er ágætt að muna þegar við höfum áhyggjur af umhverfismálum, því þá erum við í rauninni oftast að hafa áhyggjur af eigin afkomu. En svo vildi ég líka með titlinum Time After Time reyna að fanga öll þau ólíku sjónarhorn á náttúruna og tímann sem birtast í verkum listamannanna fimm. Þeir eru allir á einn eða annan hátt að fást við þennan stóra eða djúpa tíma á jarðfræðilegum skala. Um tímann í fleirtölu. Það er ekki bara einn tími, heldur margir. Tími á eftir tíma á eftir tíma. Við lékum okkur líka aðeins með þessa pælingu í grafísku hönnuninni fyrir sýninguna, þar sem orðið „tími“ kemur fyrir endurtekið og myndar lag ofan á lag. Þetta er hugsað sem eins konar áminning um að okkar tíma fylgir annar tími og svo framvegis.“
Sýningin á sér stað bæði ofan jarðar og neðan og teygir anga sína sömuleiðis út fyrir veggi Norræna hússins. „Það er ætlunin að sýningargestir upplifi sig örlítið týnda og finni fyrir óvissu varðandi það hvar sýningin byrjar og endar. Að þeir tapi jafnvel fótfestunni í dálitla stund og viti hvorki upp né niður. En finni svo vonandi eitthvert vit í þessu öllu saman og fari þá að velta fyrir sér þessari marglaga skynjun tíma og rúms. Verkin eru öll spekúlatív á þennan hátt og umfram annað vona ég að þau veki sýningargesti til umhugsunar,“ segir Sabina.
Þá verður að finna á sýningunni meðal annars vídeóverk um myrkur, gervigreindarmyndir varpað á silfurlituð neyðarteppi úr áli, draugalegar ljósmyndir af yfirgefnum iðnaðarsvæðum og myndræna hugleiðingu um steina, auk þess sem hægt verður að hlusta á hljóðverk tileinkað sólinni. „Felipe de Ávila Franco hefur skapað töfrandi verk sem gerir sýningargestum kleift að hlusta á sólina með því að fanga rafsegulbylgjur og breyta þeim í hljóð. Ég sá þetta verk á sýningu í Kaupmannahöfn í fyrra og fannst það svo fallegt að ég varð að koma með það hingað heim. Þannig að nú verður hægt að hlusta á sólina neðanjarðar, í kjallara Norræna hússins. Fyrir mig vekur verkið upp alls kyns spurningar. Er sólin einu sinni til lengur? Hvar er hún stödd núna?“
Sænski listamaðurinn Anastasia Ax mun síðan reisa skúlptúrinn „Settlers“ á opnuninni í dag. „Hún hefur áður sett upp svipað verk í Stokkhólmi og París. Þetta verður nokkuð stór skúlptúr sem sameinar náttúruleg efni og byggingarefni frá BM Vallá, sem við munum síðan skila að sýningunni lokinni svo að hægt sé að endurnýta þau. Skúlptúrinn verður byggður hér á grasflötinni sem eins konar listrænn gjörningur en hann mun líka mótast eftir veðri og vindum í allt sumar. Á þann hátt verða kraftar manns og náttúru sameinaðir.“
Aðspurð að lokum segir Sabina umhverfisvernd vera sér hjartans mál. „Fyrir mér er spurningin um loftslagið mest áríðandi spurning okkar tíma. Staðan er brýn og mér finnst mikilvægt að listir og menning geti tekið þátt í umræðunni um loftslagsmál og geri það. Margir samtímalistamenn vilja einmitt vera virkir þátttakendur í umræðunni og við ættum öll að vinna saman. Ég held að listin sé ekki síst mikilvæg vegna þess að hún er þess megnug umfram aðrar greinar að geta hjálpað okkur að sjá fyrir okkur og gera áþreifanleg ólík sjónarhorn og sviðsmyndir.“
Samsýningin Time After Time verður opnuð í Hvelfingunni í dag kl. 17 og stendur til 14. september. Aðgangur er ókeypis. Frekari upplýsingar er að finna á nordichouse.is.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.