Hvar er ljóti andarunginn?

„Nýja Lilo & Stich er ekki alveg á pari við …
„Nýja Lilo & Stich er ekki alveg á pari við upprunalegu teiknimyndina, þó hún sé skemmtileg.“

Lilo & Stitch er leik­in end­ur­gerð af upp­runa­legu og feiki­vin­sælu teikni­mynd­inni Lilo & Stitch frá ár­inu 2002 eft­ir Chris Sand­ers og Dean DeBlois. Mynd­in fjall­ar um havaísku stúlk­una Lilo Pelekai sem er alin upp af eldri syst­ur sinni Nani. Barna­vernd­ar­nefnd fylg­ist grannt með Nani og ef aðstæður breyt­ast ekki er lík­legt að systr­un­um verði stíað í sund­ur. Ekki bæt­ir það ástandið þegar Lilo tek­ur að sér band­brjálaðan hund sem reyn­ist svo vera geim­vera.

Lilo gef­ur hon­um heitið Stitch en raun­veru­legt heiti hans er „Til­raun 626“ en hann er hættu­leg til­raun vís­inda­geim­ver­unn­ar Jumba (Zach Galifi­anak­is) og er hannaður til að valda eyðilegg­ingu og ringul­reið hvert sem hann fer. Stitch er dæmd­ur í út­legð en tekst að sleppa og brot­lend­ir á jörðinni. Tvær van­hæf­ar geim­ver­ur, Jum­bo og Pleakley (Billy Magn­us­sen), eru send­ar niður á jörðina til að hand­sama Stitch en það er hæg­ara sagt en gert. Stitch þyk­ist vera hund­ur og fel­ur sig á bak við Lilo því hann átt­ar sig á því að geim­ver­urn­ar mega ekki láta neitt koma fyr­ir hana eða gera vart við sig. Með tím­an­um mynd­ast sterk tengsl milli þeirra Lilo og Stitch. Um leið átt­ar hann sig á því að hann þarf ekki að vera þessi eyðileggj­andi skepna sem hann var skapaður til að vera.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vatnsberi

Sign icon Það eru einhverjir í hópi samstarfsmanna þinna sem vilja mikið til vinna að leggja stein í götu þína. Líttu aftur á hugmyndastigið áður en þú framkvæmir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Moa Hern­gren
3
Torill Thorup
5
Stein­dór Ívars­son
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vatnsberi

Sign icon Það eru einhverjir í hópi samstarfsmanna þinna sem vilja mikið til vinna að leggja stein í götu þína. Líttu aftur á hugmyndastigið áður en þú framkvæmir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Moa Hern­gren
3
Torill Thorup
5
Stein­dór Ívars­son