Fimm metra hátt verk í Hallgrímskirkju

„Við setjum verkið í nýtt samhengi, en það er fimm …
„Við setjum verkið í nýtt samhengi, en það er fimm metra hátt og gert úr böndum í mismunandi litum, þetta er endurunninn textíll sem ég ríf niður og raða svo litunum upp.“ mbl.is/Karítas

„Þegar verkið var hluti af sam­sýn­ingu í fyrra á Kor­p­úlfs­stöðum vegna 50 ára af­mæl­is Tex­tíl­fé­lags­ins feng­um við Ægis Zita sýn­ing­ar­stjór­inn minn þessa hug­mynd sam­an, að það væri stór­kost­legt ef þetta verk fengi meira rými. Við lét­um okk­ur dreyma um fal­leg­asta sýn­ing­ar­rými sem væri í boði, sjálfa Hall­gríms­kirkju, svo að við lögðumst í heim­ild­ar- og rann­sókn­ar­vinnu, gerðum grein­ar­gerð með rök­stuðningi og bjugg­um til þrívítt mód­el til að sýna hvernig þetta myndi líta út. Í fram­hald­inu fór­um við til fund­ar við teymi í kirkj­unni og gerðum til­boð um að sýna verkið þar,“ seg­ir Ídris Ró­berts­dótt­ir tex­tíll­ista­kona, en einka­sýn­ing henn­ar, ann­ar gluggi til hægri, verður opnuð í dag, sunnu­dag­inn 15. júní, í Hall­gríms­kirkju.

Ann­ar gluggi til hægri er inn­setn­ing þar sem tex­tíll ræður ríkj­um, eitt elsta list­form ver­ald­ar sem hef­ur fengið aukna og verðskuldaða at­hygli á und­an­förn­um árum. Alla tíð hef­ur verið mjög rík hefð fyr­ir tex­tíl í kirkj­um, hann er samof­inn sögu kristni, hvort sem það eru hökl­arn­ir sem prest­ar bera eða alt­ar­i­s­klæðin.

Ídris Róbertsdóttir textíllistakona.
Ídris Ró­berts­dótt­ir tex­tíll­ista­kona. Ljós­mynd/​Aðsend
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Naut

Sign icon Sinntu aðeins þeim málum sem eru efst á baugi og láttu allt annað bíða á meðan. Fyrirgefðu fólki um leið og þú sýnir að þér þykir vænt um það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Naut

Sign icon Sinntu aðeins þeim málum sem eru efst á baugi og láttu allt annað bíða á meðan. Fyrirgefðu fólki um leið og þú sýnir að þér þykir vænt um það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup