Maður með leðurlungu í Noregi

Robert John Arthur Halford, eða bara Rob Halford, söngvari Judas …
Robert John Arthur Halford, eða bara Rob Halford, söngvari Judas Priest, flytur hjartnæma þakkarræðu á tónleikunum í Hamar á laugardaginn. Þakkarræður eldri þungarokkspostula verða æ hjartnæmari með árunum og má þar meðal annars nefna ræður James Hetfield í Metallica sem átt hafa sér markvissan þróunarferil allar götur frá aldamótum. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson

„Sæl­ir ribb­ald­ar, Prest­ur­inn er snú­inn aft­ur!“ eða upp á engilsax­nesku „Hey you maniacs, the Priest is back!“ Svo heilsaði Robert John Arth­ur Hal­ford sauðsvört­um pupu­ln­um af sviði á Tju­v­hol­men Ar­ena í norska smá­bæn­um Ham­ar í Inn­land­et-fylki á tí­unda tím­an­um eft­ir þar­gildu tíma­belti á laug­ar­dags­kvöldið.

Ef til vill kveikja les­end­ur ekki all­ir sem einn á per­unni þegar fullu og virðulegu nafni prests þessa er slegið fram, enda hef­ur maður­inn aldrei vígst til nokk­urs brauðs svo vitað sé. Þessi sjálf­skipaði sálusorg­ari er nefni­lega bet­ur þekkt­ur und­ir stutt­nefni sínu Rob Hal­ford, en einnig und­ir viður­nefn­inu „maður­inn með leðurlung­un“ sem hann ber með rentu og rúm­lega það, en hefðu öll glös af bör­um Tju­v­hol­men Ar­ena á laug­ar­dag­inn ekki verið gerð af plasti einu hefðu þau án vafa brotnað í mylsnu þegar þessi 73 ára gamli söngv­ari bresku Bir­ming­ham-málmpostul­anna í Ju­das Priest fór á háa C-ið.

Það C glym­ur hærra en flest önn­ur er Hal­ford er ann­ars veg­ar, maður­inn er ein­fald­lega fær um að fram­kalla meiri og sárs­auka­fyllri – inn­an gæsalappa – hávaða með barka sín­um ein­um en öll ra­f­ræn hljóðfæri sveit­ar­inn­ar sam­an­lagt.

Sviðsmyndir Judas Priest kalla sjaldnast á sérstök leyfi frá slökkviliði …
Sviðsmynd­ir Ju­das Priest kalla sjaldn­ast á sér­stök leyfi frá slökkviliði tón­leika­borga og -bæja, söngrödd „manns­ins með leðurlung­un“ ætti hins veg­ar að kalla á mat á um­hverf­isáhrif­um. mbl.is/​Atli Steinn Guðmunds­son

Sveit­in 55 ára í fyrra

Hinn sker­andi radd­styrk­ur Hal­fords er óum­deilt vörumerki Ju­das Priest. Sír­en­urn­ar söng­elsku, sem Ódysseif­ur mátti stand­ast í kviðu forn­gríska skálds­ins Hóm­ers, voru kven­ver­ur í dýrs­líköm­um sem sagt var að eng­inn hefði séð eða heyrt og lifað til að segja frá þeim. Seiddu þær sæ­fara til eyj­ar sinn­ar þaðan sem eng­inn átti aft­ur­kvæmt.

Með sama hætti seiðir Rob Hal­ford, fædd­ur í Warwicks­hire síðsum­ars 1951, unn­end­ur þung­arokks að tón­leika­stöðum Ju­das Priest, sveit­ar sem fagnaði 55 ára af­mæli í fyrra, en ólíkt sæ­för­um Hóm­ers í kviðunni góðu eiga flest­ir tón­leika­gest­ir aft­ur­kvæmt, hugs­an­lega þó nán­ast heyrn­ar­laus­ir tíma­bundið. Sjálf­ur var Hóm­er blind­ur svo all­ur þessi hávaði, forn­grísk­ar Sír­en­ur og Rob Hal­ford, er kannski eitt­hvað til að var­ast.

Sverre og Ilhan voru mætt á eitt margra öldurhúsa Hamars …
Sver­re og Ilh­an voru mætt á eitt margra öld­ur­húsa Ham­ars á laug­ar­dag­inn og fékk blaðamaður að heyra tón­leika­sögu Sver­re. Hann hef­ur farið á marga tón­leika, mynda­text­inn yrði lengri en meg­in­málið væri farið í upp­taln­ingu. Hann vissi þó ekki að hann væri að fara að sjá Ju­das Priest fyrr en Ilh­an gaf hon­um tón­leikamiðann í jóla­gjöf. mbl.is/​Atli Steinn Guðmunds­son

Ekki voru um það bil 9.000 tón­leika­gest­ir á Tju­v­hol­men í Ham­ar sam­mála því, enda nán­ast upp­selt á tón­leik­ana á laug­ar­dag­inn, þar sem ekki ómerk­ara þríeyki en ZZ TOP steig á stokk 8. júní 2019 á eft­ir­minni­leg­um tón­leik­um sem mbl.is gerði verðskulduð skil.

Tju­v­hol­men í Ham­ar er ákaf­lega heill­andi tón­leika­svæði við strend­ur Mjøsa, stærsta stöðuvatns Nor­egs, sem er hvorki meira né minna en 117 kíló­metra langt og 362 fer­kíló­metr­ar, hátt í fimm­falt Þing­valla­vatn. Svæðið ligg­ur á milli miðbæj­ar Ham­ars og vatns­ins svo öld­ur­hús og veit­ingastaðir eru í þægi­leg­asta göngu­færi og ein­kenndu húðflúraðir, síðhærðir, síðskeggjaðir, leður­klædd­ir, galla­vesta­klædd­ir og al­mennt af allra létt­asta skeiði komn­ir gest­ir knæp­ur Ham­ars fyr­ir tón­leik­ana þar sem hitað var upp af elju er sig­týs ölið rauða rann í stríðum straum­um.

Þessir tveir kumpánar ásamt blaðamanni voru í nánd við meðalaldur …
Þess­ir tveir kump­án­ar ásamt blaðamanni voru í nánd við meðal­ald­ur á tón­leik­um Ju­das Priest. Fimm­tíu og sex ára göm­ul hljóm­sveit á sér ekki mikið yngri aðdá­end­ur. mbl.is/​Atli Steinn Guðmunds­son

Ég er þá ekki svo gam­all

Blaðamaður hef­ur sótt og/​eða skrifað um ótölu­leg­an grúa þung­arokks­tón­leika síðustu ár, Metallica, Ramm­stein, Slayer, Sepultura, Iron Mai­den, AC/​DC, nefndu það bara (og til er tár­vot­ur miði á tón­leika System of a Down í Berlín í júní 2020 sem er og verður alltaf ofan í skúffu – eina þannig séð öm­ur­lega minn­ing þess sem hér skrif­ar um covid-árin tvö). Ekki minn­ist nú 51 árs gam­all und­ir­ritaður þess þó að hafa verið að því er virðist aðeins und­ir meðal­aldri á slík­um tón­leik­um fyrr en nú helg­ina góðu í Ham­ar. Ju­das Priest geng­ur næst Roll­ing Stones í fjölda starfs­ára og tón­leika­gest­ir því flest­ir af barns­aldri – sum­ir jafn­vel að nálg­ast þá bitru staðreynd í grá­hærðri speg­il­mynd sinni að tvisvar verður gam­all maður barn.

„Sól tér sortna/sígr fold í mar“. Sólin sekkur i Mjøsa-vatn …
„Sól tér sortna/​sígr fold í mar“. Sól­in sekk­ur i Mjøsa-vatn um það bil er tón­leika­gest­ir flykkj­ast að Tju­v­hol­men Ar­ena í Ham­ar. Unn­ur Ýr Jó­hanns­dótt­ir var meðal gesta, en hún hef­ur búið í Nor­egi í hart­nær 30 ár. mbl.is/​Atli Steinn Guðmunds­son

Þeim góða máls­hætti var þing­lýst ræki­lega á laug­ar­dag­inn þar sem elstu menn og kon­ur hoppuðu hæð sína í loft upp í öll­um leður­klæðum, steyttu horn­in, skrá­sett vörumerki þung­arokks­ins, í all­ar átt­ir með vísi- og litlafing­ur á lofti, hlógu, grétu, sungu, öskruðu og spjölluðu jafn­vel við blaðamann ofan af Íslandi um fer­il sinn á Ju­das Priest-tón­leik­um. Ná­ungi sem kom ak­andi frá barn­um í hjóla­stól klyfjuðum guðaveig­um hafði séð sveit­ina fyrst á tón­leik­um henn­ar í Bet­lehem 1982 þar sem segja má að stál­in stinn hafi mæst, Jesús Krist­ur og Rob Hal­ford.

Annað tveggja barna sem blaðamaður kom auga á meðan á …
Annað tveggja barna sem blaðamaður kom auga á meðan á tón­leik­um stóð. Á tón­leik­um Metallica og Iron Mai­den hitt­ast tug­ir stoltra for­eldra fyr­ir með börn sín sem eru að feta sig út í málm­inn. Kannski nær Ju­das Priest ekki að brúa sitt kyn­slóðabil. mbl.is/​Atli Steinn Guðmunds­son

Eft­ir að upp­hit­un­ar­sveit­ir, sem ég hef sjaldn­ast nennu til að skrifa um, luku keppni létu Hal­ford og fé­lag­ar – sem rétt er að nefna að eru þeir Ian Hill bassa­leik­ari, gít­ar­leik­ar­arn­ir Glenn Tipt­on og Richie Faul­kner og tromm­ar­inn Scott Tra­vis – bíða hæfi­lega lengi eft­ir sér áður en sviðið sprakk út í gneista­flugi með All Guns Blaz­ing af hinni dúnd­urþéttu Paink­iller-plötu frá 1990 sem er mín upp­á­halds, en vit­an­lega hófst veg­ferð Ju­das Priest fyr­ir al­vöru með tíma­móta­skíf­unni Brit­ish Steel vorið 1980 eft­ir að sveit­in hafði átt í hálf­gerðu brasi við að ná al­mennri at­hygli. Hljóðvers­plöt­ur henn­ar eru nítj­án tals­ins, 1974 til 2024, geri aðrir í átt að því.

Tók líf sitt átján ára

Enn betri er ár­ang­ur­inn í fjölda þeirra tón­list­ar­manna sem runnið hafa gegn­um Ju­das Priest, í þeim hópi er 21 ein­stak­ling­ur, en sveit­in hef­ur ein­mitt náð sama sögu­lega ár­angri og bras­il­íska goðsögn­in Sepultura – eng­inn þeirra sem stofnuðu þess­ar sveit­ir til­heyra þeim leng­ur. Í til­felli Ju­das Priest voru það Al Atkins, Bri­an „Bruno“ Stapen­hill, John „Fezza“ Partridge og John Perry sem varð ekki lang­líf­ur, tók eigið líf átján ára að aldri.

Öryggisgæsla á tónleikunum var í meðallagi, verðir í gulu víða, …
Örygg­is­gæsla á tón­leik­un­um var í meðallagi, verðir í gulu víða, ein lög­reglu­bif­reið og ein slökkviliðsbif­reið. Tölu­verð slök­un sé miðað við tón­leika Iron Mai­den í Ber­gen í júní 2023 þar sem norski her­inn var í gæslu grár fyr­ir járn­um auk tuga lög­reglu­manna í kjöl­far þá til­tölu­lega ný­legr­ar inn­rás­ar Rússa í Úkraínu. mbl.is/​Atli Steinn Guðmunds­son

Án þess að tí­unda þau 23 lög sem þeir Júdasar­prest­ar fluttu fjall­hress­um tón­leika­gest­um á laug­ar­dag­inn, þar af fjög­ur í upp­klappi, voru þar á efn­is­skrá meist­ara­verkið Break­ing the Law sem hefði sent þak hvaða tón­leik­astaðar sem vera skyldi af hús­inu, en hér var leikið und­ir ber­um himni.

Auk þess fór bróðurpart­ur Paink­iller-plöt­unn­ar í spil­un, Hell Patrol, Nig­ht Crawler, Battle Hymn, One Shot at Glory, Between the Hammer and the An­ville, tit­il­lagið Paink­iller og...já, hvað halda nú kunn­ug­ir? Jú, vit­an­lega, A Touch of Evil, hrein­ræktað meist­ara­stykki þar sem leðurlungu Hal­fords ein­fald­lega stöðvuðu tím­ann í ljóðlínu sem fór lík­lega yfir millj­ón desi­bel:  „YOU'RE POSSESS­ING ME!“ Þess­ar þrjár sek­únd­ur ein­ar voru þess virði að sækja tón­leik­ana í Ham­ar á laug­ar­dag­inn. Ein­hverj­ir töldu sig hafa séð log­andi gervi­hnött hrapa í Mjøsa-vatnið skömmu eft­ir að leðurlung­un bás­únuðu þenn­an hápunkt.

1.910 tón­leik­ar – er það ekki eitt­hvað?

Ljóst er þó að lim­irn­ir dansa ekki eft­ir lung­un­um. Robert Hal­ford er kom­inn langt í burtu frá sínu létt­asta skeiði...eigi söngv­ar­ar nafn­toguðustu þung­arokks­sveita heims sér þá ein­hver létt skeið. Karl­inn var að vanda þak­inn leðri og húðflúrið á höfðinu hef­ur um ára­bil verið álíka æp­andi og leðurlung­un.

Hitt tónleikabarnið á laugardaginn. Ráðirðu við að bregða hornunum á …
Hitt tón­leika­barnið á laug­ar­dag­inn. Ráðirðu við að bregða horn­un­um á loft skaltu bara mæta. Þessi gutti var í kerru, blaðamaður ræddi við ann­an í hjóla­stól sem sá Ju­das Priest í Bet­lehem 1982. mbl.is/​Atli Steinn Guðmunds­son

Önnur sviðsfram­koma er þó orðin Hal­ford þung, lái hon­um hver sem vill. Hann rölt­ir um sviðið og baðar út ein­um út­lim í einu. Ekki verður öldrun gagn­rýnd í þess­um texta, Rob Hal­ford veit nefni­lega hvað hann syng­ur og út á þann söng selj­ast tón­leikamiðar. Ju­das Priest á að baki 32 tón­leika­ferðalög, þeirra um­fangs­mest Kill­ing Machine sem fól í sér 165 tón­leika. Alls hef­ur sveit­in haldið 1.910 tón­leika frá 1969 þar til í fyrra­dag og plöt­ur henn­ar selst í yfir 50 millj­ón­um ein­taka.

Eft­ir að Hal­ford kvaddi sér hljóðs og flutti gest­um hjart­næma þakk­arræðu fyr­ir að standa í að mæta enda­laust á tón­leika sveit­ar­inn­ar, þung­arokkið væri límið sem héldi heims­byggðinni sam­an og svo fram­veg­is (sem er raun­ar heil­ag­ur sann­leik­ur), heykt­ist hann ekki á föstu leik­atriði, að aka upp á svið á víga­leg­um Harley-Dav­idson-fær­leik við gríðarleg fagnaðarlæti viðstaddra.

Tjuvholmen Arena er stórskemmtilegt tónleikasvæði og af einhverjum ástæðum dragast …
Tju­v­hol­men Ar­ena er stór­skemmti­legt tón­leika­svæði og af ein­hverj­um ástæðum drag­ast heimsþekkt­ar rokksveit­ir að bæn­um Ham­ar í Inn­land­et eins og flug­ur að skít. mbl.is/​Atli Steinn Guðmunds­son

Harley-frammistaðan hef­ur ekki alltaf farið að ósk­um og kostaði Hal­ford brotið nef á tón­leik­um í Toronto í Kan­ada í ág­úst 1991. Þá brást lyfti­búnaður sem kom hon­um og hjól­inu upp á aðalsvið tón­leik­anna með þeim af­leiðing­um að hvort tveggja, Hal­ford og Harley-inn féllu af lyft­upall­in­um. Fór þó ekki fyr­ir þeim sem ambátt­inni Brák í Eg­ils sögu er Skalla-Grím­ur þeytti bjarg­inu milli herða henn­ar á sund­inu „ok kom hvár­tki upp síðan“. Hal­ford sneri aft­ur á sviðið og hef­ur stigið á margt sviðið síðan þann dag – á laug­ar­dag­inn í Ham­ar í Nor­egi.

Lýk­ur hér tón­leikakroníku þess­ari.

Föst leikatriði er einhver klisja úr fótbolta, en hér gefur …
Föst leik­atriði er ein­hver klisja úr fót­bolta, en hér gef­ur að líta pikk­fast leik­atriði Hal­fords á tón­leik­um, að aka fær­leik af ætt og kyni Harley-Dav­idson upp á svið. mbl.is/​Atli Steinn Guðmunds­son
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Tvíburar

Sign icon Þú ert fullur af orku og veist ekki alveg hvernig þú átt að þér að vera. Þótt tilfinningarnar hafi tekið stjórnina verður þú að taka ábyrgð á því sem þú segir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Tvíburar

Sign icon Þú ert fullur af orku og veist ekki alveg hvernig þú átt að þér að vera. Þótt tilfinningarnar hafi tekið stjórnina verður þú að taka ábyrgð á því sem þú segir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir