Stakk sjálfboðaliða með sprautunál

Utangarðs á Íslandi | 23. ágúst 2012

Stakk sjálfboðaliða með sprautunál

Maður vopnaður sprautunál stakk sjálfboðaliða Rauða krossins þrívegis í lærið fyrr í mánuðinum. Árásarmaðurinn náðist ekki og sjálfboðaliðinn þarf að bíða þar til um miðjan næsta mánuð til að fá niðurstöður úr blóðprufum sem teknar voru eftir árásina.

Stakk sjálfboðaliða með sprautunál

Utangarðs á Íslandi | 23. ágúst 2012

Sjálfboðaliði við Hjálparsímann.
Sjálfboðaliði við Hjálparsímann.

Maður vopnaður sprautu­nál stakk sjálf­boðaliða Rauða kross­ins þríveg­is í lærið fyrr í mánuðinum. Árás­armaður­inn náðist ekki og sjálf­boðaliðinn þarf að bíða þar til um miðjan næsta mánuð til að fá niður­stöður úr blóðpruf­um sem tekn­ar voru eft­ir árás­ina.

Maður vopnaður sprautu­nál stakk sjálf­boðaliða Rauða kross­ins þríveg­is í lærið fyrr í mánuðinum. Árás­armaður­inn náðist ekki og sjálf­boðaliðinn þarf að bíða þar til um miðjan næsta mánuð til að fá niður­stöður úr blóðpruf­um sem tekn­ar voru eft­ir árás­ina.

Sjálf­boðaliðinn sem verið hef­ur hjá Rauða kross­in­um í um það bil ár var á leið á vakt snemma að kvöldi laug­ar­dags­ins 4. ág­úst, um versl­un­ar­manna­helgi, í Rauðakross­hús­inu við Hlemm­torg.

Þegar sjálf­boðaliðinn gekk í átt að hús­inu vatt sér að hon­um maður og spurði fyrst hvort hann væri sjálf­boðaliði Rauða kross­ins en síðan hvort hann gæti ekki bjargað hon­um um hrein­ar sprautu­nál­ar. Sjálf­boðaliðinn neitaði því enda ekki með aðgang að sprautu­nál­um. Þessu næst hóf hann vakt sína.

Að vakt­inni lok­inni, um klukk­an ell­efu, fór sjálf­boðaliðinn út á bíla­plan og sett­ist inn í bif­reið sína. Þá var hurðin á bíln­um rif­in upp og hann stung­inn þríveg­is í lærið með sprautu­nál. Eft­ir það lét árás­armaður­inn sig hverfa.

Náðist ekki á ör­ygg­is­mynda­vél­ar

Sjálf­boðaliðinn hringdi þegar í lög­reglu sem kom fljót­lega á vett­vang en árás­ar­mann­inn var hvergi að finna. Í kjöl­farið fór hann á Land­spít­ala þar sem tekn­ar voru blóðpruf­ur. Hon­um var þá sagt að það tæki sex vik­ur að fá niður­stöðu, sem er þá um 15. sept­em­ber.

Í vik­unni á eft­ir var farið yfir upp­tök­ur úr ör­ygg­is­mynda­vél­um sem eru við Ari­on banka en at­vikið gerðist of langt frá hús­inu til að það sæ­ist á þeim.

Því virðist sem árás­armaður­inn þurfi ekki að svara til saka en sjálf­boðaliðinn bíður á milli von­ar og ótta.

Frú Ragn­heiður fór ekki af stað

Þótt erfitt sé að segja til um ástæður árás­ar­inn­ar með fullri vissu og hana aldrei hægt að af­saka er þess að geta að Frú Ragn­heiður, skaðam­innk­un­ar­verk­efni Rauða kross­ins, er venju­lega starf­rækt við Hlemm­torg á laug­ar­dags­kvöld­um.

Um er að ræða verk­efni sem geng­ur út á að ná til jaðar­hópa sam­fé­lags­ins, s.s. útigangs­fólks, heim­il­is­lausra og fíkla, og bjóða þeim til dæm­is hrein­ar sprautu­nál­ar.

Verk­efnið er rekið í sjúkra­bif­reið sem ekið er um borg­ina og stopp­ar á ákveðnum stöðum. Ferðin hefst og end­ar við Hlemm. Þenn­an til­tekna dag, 4. ág­úst, feng­ust hins veg­ar ekki sjálf­boðaliðar til að manna Frú Ragn­heiði og fór bíll­inn því aldrei af stað.

Því má geta sér þess til að árás­armaður­inn hafi verið kom­inn til að nýta sér þjón­ustu Frú Ragn­heiðar.

Hjá Rauða kross­in­um feng­ust þær upp­lýs­ing­ar að at­vik sem þetta hefði aldrei áður komið upp.

Starfsmaður Rauða krossins að störfum í bílnum Frú Ragnheiði þar …
Starfsmaður Rauða kross­ins að störf­um í bíln­um Frú Ragn­heiði þar sem dreift er spraut­um, nál­um og smokk­um til fíkla. Ómar Óskars­son
mbl.is