Grunaður brennuvargur ekki í haldi

Utangarðs á Íslandi | 8. október 2012

Grunaður brennuvargur ekki í varðhaldi

Hæstiréttur ógilti í dag úrskurð Héraðsdóms Suðurlands frá því fyrir helgi um 30 daga gæsluvarðhald yfir karlmanni sem gerði tilraun til að leggja eld að lögreglustöð bæjarins fyrir viku. Lögreglan á Selfossi hefur þurft að hafa afskipti af manninum í 124 skipti undanfarna sex mánuði.

Grunaður brennuvargur ekki í varðhaldi

Utangarðs á Íslandi | 8. október 2012

mbl.is/Eggert

Hæstirétt­ur ógilti í dag úr­sk­urð Héraðsdóms Suður­lands frá því fyr­ir helgi um 30 daga gæslu­v­arðhald yfir karl­manni sem gerði til­raun til að leggja eld að lög­reglu­stöð bæj­ar­ins fyr­ir viku. Lög­regl­an á Sel­fossi hef­ur þurft að hafa af­skipti af mann­in­um í 124 skipti und­an­farna sex mánuði.

Hæstirétt­ur ógilti í dag úr­sk­urð Héraðsdóms Suður­lands frá því fyr­ir helgi um 30 daga gæslu­v­arðhald yfir karl­manni sem gerði til­raun til að leggja eld að lög­reglu­stöð bæj­ar­ins fyr­ir viku. Lög­regl­an á Sel­fossi hef­ur þurft að hafa af­skipti af mann­in­um í 124 skipti und­an­farna sex mánuði.

Í úr­sk­urði Héraðsdóms Suður­lands frá 3. októ­ber seg­ir að maður­inn sé langt leidd­ur af al­var­legri áfeng­is­sýki, hann sé útigangs­maður og að kvartað sé yfir hon­um nærri því dag­lega á Sel­fossi.

Hann sé ít­rekað til ama í versl­un­um og á veit­inga­stöðum bæj­ar­ins, hann ráðist á fólk og skemmi eig­ur þess og þá hafi hann lagt eld að þeim stöðum þaðan sem hon­um hafi verið út­hýst eða „ekki látið að vilja hans“. Rann­sókn­ar­deild lög­regl­unn­ar hef­ur haft til meðferðar fimm íkveikju­mál frá ár­inu 2009 þar sem maður­inn hef­ur rétt­ar­stöðu sak­born­ings.

Að auki hef­ur hann á und­an­förn­um árum verið dæmd­ur fyr­ir ýmis brot. 

„Rök­studd­ur grun­ur leik­ur á því að fyr­ir kærða sé nú þannig komið sök­um langvar­andi áfeng­isneyslu hans að veru­leg hætta sé á því að hann valdi elds­voða með ófyr­ir­séðum af­leiðing­um og ber því nauðsyn til að verja aðra fyr­ir kærða að þessu leyti,“ seg­ir í úr­sk­urði Héraðsdóms Suður­lands.

Þessu var Hæstirétt­ur ekki sam­mála.

Í dómi Hæsta­rétt­ar seg­ir að ekki séu færð fram viðhlít­andi rök eða gögn til stuðnings þeirri staðhæf­ingu að hætta á elds­voða sé yf­ir­vof­andi af völd­um manns­ins. Að auki verði mann­in­um ekki gert að sæta varðhaldi með vís­an til þess að ver­gang­ur hans valdi íbú­um Sel­foss ama og því var gæslu­v­arðhalds­úrsk­urður­inn felld­ur úr gildi.

Dóm­ur Hæsta­rétt­ar

mbl.is