Engir skjálftar við Heklu í dag

Hekla | 26. mars 2013

Engir skjálftar við Heklu í dag

Engir jarðskjálftar hafa mælst við Heklu í dag, en grannt er fylgst með stöðu mála. Óvissustig almannavarna er ennþá í gildi á svæðinu og var því lýst yfir eftir að Veðurstofa Íslands upplýsti almannavarnadeild ríkislögreglustjóra um óvenjulegar jarðhræringar í Heklu, en undanfarnar tvær vikur hafa mælst þar sjö skjálftar.

Engir skjálftar við Heklu í dag

Hekla | 26. mars 2013

Hekla séð úr Þjórsárdal
Hekla séð úr Þjórsárdal mbl.is/Sigurður Bogi

Eng­ir jarðskjálft­ar hafa mælst við Heklu í dag, en grannt er fylgst með stöðu mála. Óvissu­stig al­manna­varna er ennþá í gildi á svæðinu og var því lýst yfir eft­ir að Veður­stofa Íslands upp­lýsti al­manna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra um óvenju­leg­ar jarðhrær­ing­ar í Heklu, en und­an­farn­ar tvær vik­ur hafa mælst þar sjö skjálft­ar.

„Við hefðum ekki haft áhyggj­ur ef þetta hefði verið annað fjall,“ seg­ir Mart­in Hensch, eld­fjalla­skjálfta­fræðing­ur hjá Veður­stofu Íslands. „En svona hef­ur ekki gerst frá ár­inu 2000 og það er ástæðan fyr­ir óvissu­stig­inu. “

„Eins og staðan er núna er eng­in ástæða til að hafa áhyggj­ur,“ seg­ir Mart­in.

Al­manna­varn­ir munu fara yfir stöðuna á morg­un og þá verður tek­in ákvörðun um hvort óvissu­stig­inu verði haldið áfram. 

mbl.is