Gasmælir á Heklutindi

Hekla | 26. mars 2013

Gasmælir á Heklutindi

Veðurstofa Íslands setti upp gasmæli á Heklu fyrir tæpri viku síðan, en hann á að geta gefið vísbendingar um hvort eldgos sé í aðsigi. TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, flutti mælinn á tind fjallsins og munu mælingar hefjast í byrjun apríl.

Gasmælir á Heklutindi

Hekla | 26. mars 2013

Þyrla Landhelgisgæslunnar á leið með skýlið á Heklutind.
Þyrla Landhelgisgæslunnar á leið með skýlið á Heklutind. www.vedur.is

Veður­stofa Íslands setti upp gasmæli á Heklu fyr­ir tæpri viku síðan, en hann á að geta gefið vís­bend­ing­ar um hvort eld­gos sé í aðsigi. TF-LÍF, þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar, flutti mæl­inn á tind fjalls­ins og munu mæl­ing­ar hefjast í byrj­un apríl.

Veður­stofa Íslands setti upp gasmæli á Heklu fyr­ir tæpri viku síðan, en hann á að geta gefið vís­bend­ing­ar um hvort eld­gos sé í aðsigi. TF-LÍF, þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar, flutti mæl­inn á tind fjalls­ins og munu mæl­ing­ar hefjast í byrj­un apríl.

Mæl­ing­arn­ar hóf­ust í fyrra og er um að ræða sam­starfs­verk­efni Veður­stof­unn­ar við ÍSOR og ít­ölsku jarðváreft­ir­lits­stofn­un­ina INGV í Pal­ermo.

Aðferðafræðin var prófuð sum­arið 2012 og at­hugað hvort hún hentaði á Heklu. Mæl­ing­ar gengu mjög vel frá því stöðin var sett upp í júlí og fram í sept­em­ber en þá kom upp vanda­mál með þráláta ís­ingu á vind­myllu sem sá mæl­in­um fyr­ir raf­magni, sam­kvæmt frétt á vef Veður­stof­unn­ar.

Stöðin hef­ur nú verið end­ur­hönnuð af tækni­mönn­um Veður­stof­unn­ar og INGV svo að hægt sé að mæla all­an árs­ins hring á toppi Heklu. Búnaður­inn og raf­geym­ar eru nú í sér­smíðuðum kofa og sól­ar­ljós og hiti úr eld­fjall­inu nýtt til að halda stöðinni gang­andi.

Gasmæl­ing­arn­ar í fyrra gáfu vís­bend­ing­ar um að á um 10 kíló­metra dýpi und­ir Heklu sé kviku­hólf sem stækki jafnt og þétt. Talið er að efna­breyt­ing­ar í gasút­streym­inu geti gefið vís­bend­ingu um það þegar kvika fer að fær­ast nær yf­ir­borði.

Eft­ir að mæl­ing­ar hefjast munu gögn­in streyma á Veður­stof­una þar sem þau tengj­ast ann­ars­kon­ar vökt­un (skjálfta­virkni, skorpuþenslu). Lögð er áhersla á að hefja sem fyrst sam­fellda söfn­um gagna til að fá upp­lýs­ing­ar um hegðun gasút­streym­is frá eld­stöðinni og finna þrösk­ulds­gildi sem nýst geta sem fyr­ir­boðar eld­goss.

Gasmæl­inga­stöðin hef­ur fengið gælu­nafnið Café Hekla. Hún er staðsett á tindi Heklu til fram­búðar, með leyfi frá Rangárþingi ytra. 


Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti skýli fyrir gasmælistöð á tind Heklu.
Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar flutti skýli fyr­ir gasmælistöð á tind Heklu. www.ved­ur.is
mbl.is