Óvissustig enn í gildi

Hekla | 27. mars 2013

Óvissustig enn í gildi

Minniháttar skjálfti varð við Heklu í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands var skjálftinn ekki á sama svæði og skjálftarnir sem mælst hafa norðaustur af Heklu síðan 10. mars á þessu ári.

Óvissustig enn í gildi

Hekla | 27. mars 2013

Fólk er varað við ferðum á Heklu.
Fólk er varað við ferðum á Heklu. mbl.is/Sigurður Bogi

Minni­hátt­ar skjálfti varð við Heklu í nótt. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Veður­stofu Íslands var skjálft­inn ekki á sama svæði og skjálft­arn­ir sem mælst hafa norðaust­ur af Heklu síðan 10. mars á þessu ári.

Minni­hátt­ar skjálfti varð við Heklu í nótt. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Veður­stofu Íslands var skjálft­inn ekki á sama svæði og skjálft­arn­ir sem mælst hafa norðaust­ur af Heklu síðan 10. mars á þessu ári.

Sér­fræðing­ar fylgj­ast grannt með stöðu mála. Óvissu­stigi al­manna­varna vegna jarðhrær­inga í Heklu hef­ur ekki verið aflétt.

Fólk varað við ferðum á Heklu

Rík­is­lög­reglu­stjóri og lög­reglu­stjór­inn á Hvols­velli vöruðu í gær við ferðum fólks á Heklu á meðan óvissu­stig er í gildi. „Fyr­ir­var­inn get­ur verið stutt­ur ef það fer að gjósa,“ seg­ir Kjart­an. „Meðan þetta óvissu­stig er í gangi vör­um við við því að fólk fari á fjallið.“

Þetta er aðeins viðvör­un og hef­ur göngu­leiðum fjalls­ins ekki verið lokað. Aðspurður seg­ir Kjart­an ekki vita þess að fólk hafi gengið á fjallið í gær.

Frétt mbl.is: Óvissu­stig vegna Heklu

mbl.is