Þurfa að auka við þjónustuna

Utangarðs á Íslandi | 7. maí 2013

Þurfa að auka við þjónustuna

Mun fleiri leita nú skjóls hjá Dagsetri Hjálpræðishersins en á síðasta ári og er gert ráð fyrir að halda starfseminni opinni áfram í sumar vegna mikillar aðsóknar en þangað leitar fólk í neyð yfir daginn. Hingað til hefur það lokað yfir sumartímann þegar heimilislausir sækja minna í þjónustuna.

Þurfa að auka við þjónustuna

Utangarðs á Íslandi | 7. maí 2013

00:00
00:00

Mun fleiri leita nú skjóls hjá Dag­setri Hjálp­ræðis­hers­ins en á síðasta ári og er gert ráð fyr­ir að halda starf­sem­inni op­inni áfram í sum­ar vegna mik­ill­ar aðsókn­ar en þangað leit­ar fólk í neyð yfir dag­inn. Hingað til hef­ur það lokað yfir sum­ar­tím­ann þegar heim­il­is­laus­ir sækja minna í þjón­ust­una.

Rann­vá Ol­sen, for­stöðukona dag­set­urs­ins, seg­ir kon­ur sækja þjón­ust­una meira en áður en Dag­setrið er opið frá kl. 10 á morgn­ana til kl. 17 á dag­inn þar sem hægt er að fá mat og kom­ast í sturtu. Í fyrra voru leituðu tæp­lega tutt­ugu manns að meðaltali á dag til dag­set­urs­ins en það sem af er ári eru þeir nær þrjá­tíu og fara yfir fjör­tíu á álagspunkt­um um helg­ar.

Í gær kom fram að álag í Gisti­skýl­inu í Þing­holts­stræti hef­ur að sama skapi auk­ist mikið og Lög­regl­an þarf reglu­lega skjóta skjóls­húsi yfir heim­il­is­lausa ein­stak­linga.

mbl.is