Heimilislausum ítrekað vísað frá

Utangarðs á Íslandi | 23. júní 2013

Heimilislausum ítrekað vísað frá

Á fyrstu fjórum mánuðum ársins var 111 heimilislausum karlmönnum vísað frá Gistiskýlinu vegna plássleysis. Á sama tíma í fyrra var 24 karlmönnum vísað frá af sömu ástæðu. Fjallað var um málið á síðasta fundi mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar.

Heimilislausum ítrekað vísað frá

Utangarðs á Íslandi | 23. júní 2013

Á fyrstu fjórum mánuðum ársins var 111 heimilislausum karlmönnum vísað …
Á fyrstu fjórum mánuðum ársins var 111 heimilislausum karlmönnum vísað frá Gistiskýlinu. mbl.is/Jakob Fannar

Á fyrstu fjór­um mánuðum árs­ins var 111 heim­il­is­laus­um karl­mönn­um vísað frá Gisti­skýl­inu vegna pláss­leys­is. Á sama tíma í fyrra var 24 karl­mönn­um vísað frá af sömu ástæðu. Fjallað var um málið á síðasta fundi mann­rétt­indaráðs Reykja­vík­ur­borg­ar.

Á fyrstu fjór­um mánuðum árs­ins var 111 heim­il­is­laus­um karl­mönn­um vísað frá Gisti­skýl­inu vegna pláss­leys­is. Á sama tíma í fyrra var 24 karl­mönn­um vísað frá af sömu ástæðu. Fjallað var um málið á síðasta fundi mann­rétt­indaráðs Reykja­vík­ur­borg­ar.

Sig­trygg­ur Jóns­son fram­kvæmda­stjóri Þjón­ustumiðstöðvar Miðborg­ar og Hlíða kom á fund­inn og kynnti stöðu utang­arðsfólks í Reykja­vík. Eft­ir umræður lét mann­rétt­indaráð bóka hvatn­ingu til þess að hús­næðis­vandi Gisti­skýl­is­ins, sem ætlað er heim­il­is­laus­um körl­um í borg­inni, verði leyst­ur sem allra fyrst.

Þórir Har­alds­son, yf­ir­maður í Gisti­skýl­inu, sagði í sam­tali við mbl.is í síðasta mánuði að þessi mikla eft­ir­spurn eft­ir húsa­skjóli sé óvenju­leg og biðröð sé far­in að mynd­ast biðröð fyr­ir utan hús­næðið áður en opnað er. Hann seg­ir að lang­tíma­áhrif krepp­unn­ar séu að koma í ljós.

Gisti­skýlið sem er í Þing­holts­stræti er rekið í sam­vinnu við Reykja­vík­ur­borg fyr­ir heim­il­is­lausa Reyk­vík­inga. Þar eru rúm fyr­ir 20 manns. Skýlið er opið frá klukk­an 17 til klukk­an 10 næsta dags, alla daga árs­ins.

mbl.is