Heimilislausir tíðir gestir í fangelsi

Utangarðs á Íslandi | 25. júní 2013

Heimilislausir tíðir gestir í fangelsi

„Við leyfum öllum að gista ef við höfum pláss til þess. Stundum þurfum við þó að vekja þá og vísa þeim út til að setja inn einhverja krimma,“ segir Jóhann Karl Þórisson, aðalvarðstjóri á lögreglustöð 5 í Reykjavík og yfirmaður fangageymslu, um heimilislaust fólk sem óskar eftir gistingu í fangageymslum á nóttinni.

Heimilislausir tíðir gestir í fangelsi

Utangarðs á Íslandi | 25. júní 2013

„Við leyf­um öll­um að gista ef við höf­um pláss til þess. Stund­um þurf­um við þó að vekja þá og vísa þeim út til að setja inn ein­hverja krimma,“ seg­ir Jó­hann Karl Þóris­son, aðal­varðstjóri á lög­reglu­stöð 5 í Reykja­vík og yf­ir­maður fanga­geymslu, um heim­il­is­laust fólk sem ósk­ar eft­ir gist­ingu í fanga­geymsl­um á nótt­inni.

„Við leyf­um öll­um að gista ef við höf­um pláss til þess. Stund­um þurf­um við þó að vekja þá og vísa þeim út til að setja inn ein­hverja krimma,“ seg­ir Jó­hann Karl Þóris­son, aðal­varðstjóri á lög­reglu­stöð 5 í Reykja­vík og yf­ir­maður fanga­geymslu, um heim­il­is­laust fólk sem ósk­ar eft­ir gist­ingu í fanga­geymsl­um á nótt­inni.

Ástandið hef­ur snar­versnað und­an­farið

„Það er mjög mis­jafnt hve marg­ir koma, en oft­ast koma ein­hverj­ir á hverju kvöldi, hvort sem það er einn eða átta,“ seg­ir Jó­hann Karl og bæt­ir við að þetta hafi snar­versnað und­an­farið og lík­ast til aldrei verið verra. Mest hafa komið átta til að gista yfir eina nótt. 

„Oft eru þetta góðkunn­ingj­ar lög­reglu sem koma aft­ur og aft­ur, en nú eru einnig að koma fjöl­mörg ný and­lit sem við höf­um aldrei séð áður,“ seg­ir Jó­hann Karl sem seg­ir þá sækja mikið inn enda hef­ur verið ein­stak­lega kalt og veðrað illa síðustu mánuði.

Yf­ir­leitt er pláss fyr­ir útigangs­menn­ina til að gista en þeir fá sjaldn­ast að gista á föstu­dags- og laug­ar­dags­kvöld­um. „Þá fyll­um við vana­lega fanga­geymsl­urn­ar af fólki úr miðbæn­um, svo þeir koma hingað á virk­um dög­um og vita að þá er oft­ast laust.“

Kon­urn­ar biðja sára­sjald­an um gist­ingu

Að sögn Jó­hanns Karls eru dval­ar­gest­irn­ir eig­in­lega alltaf heim­il­is­laus­ir karl­menn og það sé sára­sjald­an sem kona biður um gist­ingu.

Á fyrstu fjór­um mánuðum árs­ins heim­il­is­laus­um karl­mönn­um vísað frá Gisti­skýl­inu í Reykja­vík í 111 til­vik­um vegna pláss­leys­is. Á sama tíma í fyrra var heim­il­is­laus­um vísað 24 sinn­um frá af sömu ástæðu. Það er aug­ljóst að fjöldi heim­il­is­lausra hef­ur fjölgað veru­lega og seg­ir Jó­hann Karl að þeir finni veru­lega mikið fyr­ir fjölg­un­inni.

mbl.is