Utangarðsmenn aldrei fleiri

Utangarðs á Íslandi | 1. september 2013

Utangarðsmenn aldrei fleiri

Fleiri utangarðsmenn sækja nú í Gistiskýlið í Reykjavík en nokkru sinni fyrr og er nýtingin um 97% að meðaltali. Nú stendur yfir leit að nýju húsnæði þannig að hægt væri að fjölga plássum. Stífar reglugerðir geta hins vegar gert viðbrögð við brýnum aðstæðum erfiðari.

Utangarðsmenn aldrei fleiri

Utangarðs á Íslandi | 1. september 2013

Mun fleiri sækja í Gistiskýlið en áður og frávísanir vegna …
Mun fleiri sækja í Gistiskýlið en áður og frávísanir vegna fjölda hafa aukist Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Fleiri utang­arðsmenn sækja nú í Gisti­skýlið í Reykja­vík en nokkru sinni fyrr og er nýt­ing­in um 97% að meðaltali. Nú stend­ur yfir leit að nýju hús­næði þannig að hægt væri að fjölga pláss­um. Stíf­ar reglu­gerðir geta hins veg­ar gert viðbrögð við brýn­um aðstæðum erfiðari.

Fleiri utang­arðsmenn sækja nú í Gisti­skýlið í Reykja­vík en nokkru sinni fyrr og er nýt­ing­in um 97% að meðaltali. Nú stend­ur yfir leit að nýju hús­næði þannig að hægt væri að fjölga pláss­um. Stíf­ar reglu­gerðir geta hins veg­ar gert viðbrögð við brýn­um aðstæðum erfiðari.

Þetta seg­ir Sig­trygg­ur Jóns­son, fram­kvæmda­stjóri þjón­ustumiðstöðvar Miðborg­ar og Hlíða, en hann hef­ur lengi unnið að mál­efn­um heim­il­is­lausra í borg­inni. Þá tel­ur Krist­ín Helga Guðmunds­dótt­ir, verk­efna­stjóri Konu­kots, að meiri áherslu mætti leggja á að veita heim­il­is­laus­um var­an­leg bú­setu­úr­ræði.

Tæp­lega 100% nýt­ing í Gisti­skýl­inu

Sam­kvæmt töl­um júlí­mánaðar frá Konu­koti og Gisti­skýl­inu nýttu sér rúm­lega 100 ein­stak­ling­ar þjón­ust­una frá einni nóttu og upp í 30 næt­ur mánaðar­ins. Nán­ast all­ir sem þangað koma hafa ís­lenska kenni­tölu þótt út­lend­ing­um hafi farið fjölg­andi. Nýt­ing­in hef­ur farið mjög vax­andi á þessu ári, eða frá um 70% nýt­ingu að meðaltali á und­an­förn­um árum upp að því að vera tæp­lega 100% að sögn Sig­tryggs.

111 karl­mönn­um vísað frá

Gisti­skýlið býður upp á næt­urg­ist­ingu fyr­ir 20 karl­menn. Óheim­ilt er að taka við ein­stak­ling­um yfir þeim fjölda og því þarf að vísa öðrum frá. Frá­vís­an­ir hafa auk­ist veru­lega, en á fyrstu fjór­um mánuðum árs­ins var 111 heim­il­is­laus­um karl­mönn­um vísað frá Gisti­skýl­inu vegna pláss­leys­is. Á sama tíma í fyrra var 24 vísað frá af sömu ástæðu. „Nýr hóp­ur not­enda vel­ferðarþjón­ustu varð til með hrun­inu og af­leiðing­um þess í auknu at­vinnu­leysi. Ásókn­in í úrræði okk­ar hef­ur aldrei verið eins mik­il,“ seg­ir Sig­trygg­ur.

Í Konu­koti er pláss fyr­ir átta kon­ur. Hús­næðið býður hins veg­ar upp á þann mögu­leika að hægt er að taka við kon­um um­fram rúm­pláss og því hef­ur ekki komið til þess að vísa þurfi nein­um frá. Þeim kon­um sem ekki er unnt að veita rúm­pláss er gef­inn mögu­leiki á að hvílast til dæm­is í sófa.

Leita að nýju hús­næði

Sig­trygg­ur seg­ir að leit að nýju hús­næði fyr­ir gisti­skýli standi nú yfir, en það geti þó reynst erfitt að finna, sök­um margra skil­yrða sem hús­næðið þarf að upp­fylla. „Þetta er háð svo mörg­um atriðum; það þarf að vera miðsvæðis, þarf að vera í sátt við íbúa og staðsett þannig að það nýt­ist vel.“

Marg­ir þeirra sem nýta sér þjón­ustu Gisti­skýl­is­ins og Konu­kots telj­ast reglu­leg­ir gest­ir og gista þar marg­ar næt­ur í mánuði. Krist­ín Helga tel­ur að horfa þurfi til þess hversu oft og lengi sum­ir ein­stak­ling­ar séu að koma án þess að fá önn­ur úrræði og þá hvaða mögu­leika sá sem sann­ar­lega er heim­il­is­laus eigi á bú­setu­úr­ræðum.

„Það er hægt að gefa sér að það að vera á göt­unni hafi slæm áhrif á sjálfs­mynd fólks, sem ger­ir því erfiðara að losna úr viðjum fíkn­ar­inn­ar. Það er ein­fald­ara að kom­ast að mann­eskju og aðstoða hana ef við vit­um hvar hún á heima. Við þurf­um að skoða hvað okk­ur finnst ásætt­an­legt að mann­eskja sé lengi í þess­ari stöðu,“ seg­ir Krist­ín.

Bú­setu­úr­ræði fyr­ir 29 ein­stak­linga

Í Reykja­vík eru starf­rækt fjög­ur heim­ili sem telj­ast til bú­setu­úr­ræða fyr­ir heim­il­is­lausa. Í smá­hýs­un­um er bú­seta fyr­ir fjóra til átta ein­stak­linga og pör, þá er heim­ili fyr­ir karla í vímu­efna­vanda þar sem pláss er fyr­ir átta karl­menn, heim­ili fyr­ir kon­ur í vímu­efna­vanda þar sem pláss er fyr­ir fimm kon­ur, ásamt heim­ili fyr­ir karla með geðfötl­un og vímu­efnafíkn með plássi fyr­ir átta. Í þess­um úrræðum er því sam­tals pláss fyr­ir 24-29 ein­stak­linga sem eru heim­il­is­laus­ir og glíma við áfeng­is- eða vímu­efnafíkn.

„Ef við lít­um á fíkn og af­leiðingu fíkn­ar sem sjúk­dóms skýt­ur það svo skökku við að gat­an þyki und­ir ein­hverj­um kring­um­stæðum ásætt­an­leg­ur staður fyr­ir þá sem eru krón­ískt veik­ir. Það þætti lík­lega ekki henta fyr­ir aðra sjúk­linga með ann­ars kon­ar sjúk­dóm,“ seg­ir Krist­ín. 

Ekki nógu mörg pláss í boði

Sig­trygg­ur seg­ir fé­lags­ráðgjafa koma viku­lega í Gisti­skýlið og Konu­kot og láti þá vita ef ein­stak­ling­ar koma þangað ít­rekað. „Það er fylgst með þessu og ég fæ viku­lega upp­lýs­ing­ar um hverj­ir þetta eru, rætt er við mann­eskj­urn­ar og farið er af stað með ferli þar sem reynt er að út­vega þeim var­an­legra hús­næði. Al­menna regl­an er sú að ef ein­stak­ling­ur kem­ur í fleiri en 10 næt­ur í mánuði er reynt að bregðast við. Hins veg­ar vilja sum­ir ein­fald­lega ekki þiggja slíka aðstoð og svo eru ekki nógu mörg pláss til fyr­ir þá sem enn eru í neyslu.“

Of um­fangs­mikið reglu­verk

Sig­trygg­ur seg­ir að þörf sé fyr­ir fleiri bú­setu­úr­ræði en erfitt geti þó verið að koma upp slíku hús­næði. „Við Íslend­ing­ar ger­um stund­um of mikl­ar kröf­ur, við erum til dæm­is með miklu dýr­ara hús­næði en í ná­granna­lönd­um og leggj­um meira í það. Þegar við vor­um að koma smá­hýs­un­um fyr­ir átt­um við í mikl­um vand­ræðum með ýms­ar reglu­gerðir. Ég tel að það mætti skoða að setja und­anþágu í regl­urn­ar, þannig að hægt væri að bregðast við brýn­um mál­um án þess að upp­fylla all­ar reglu­gerðir. Síðan þegar búið er að bjarga mál­un­um væri hægt að róa sig aðeins og skoða hvernig þetta sam­ræm­ist,“ seg­ir Sig­trygg­ur.

Ein­ung­is Reykja­vík aðstoðar heim­il­is­lausa

Sam­kvæmt út­tekt vel­ferðarsviðs Reykja­vík­ur­borg­ar frá því í mars síðastliðnum eru 179 heim­il­is­laus­ir ein­stak­ling­ar á Íslandi. Ekki eru all­ir ein­stak­ling­ar þess hóps Reyk­vík­ing­ar þótt flest­ir haldi þar til.

Reykja­vík­ur­borg er eina sveit­ar­fé­lagið á Íslandi sem veitt hef­ur heim­il­is­laus­um aðstoð, með úrræðum líkt og Gisti­skýl­inu og Konu­koti. Þar sem Reykja­vík­ur­borg fjár­magn­ar slík úrræði hafa ein­stak­ling­ar með lög­heim­ili í Reykja­vík for­gang fram yfir þá sem ekki eru með lög­heim­ili í borg­inni. Nú þegar oft er yf­ir­fullt í Gisti­skýl­inu er þeim sem koma úr öðrum sveita­fé­lög­um því fyrst vísað út á gadd­inn.

„Fólk sem annaðhvort vel­ur sér þenn­an lífstíl eða lend­ir í hon­um flyt­ur sig til Reykja­vík­ur, það er eina sveit­ar­fé­lagið þar sem hægt er að vera utang­arðs,“ seg­ir Sig­trygg­ur. Þótt ein­stak­ling­ar úr öðrum sveita­fé­lög­um nýti sér þjón­ust­una er Reykja­vík­ur­borg ein um kostnaðinn. Sig­trygg­ur seg­ir að í mörg ár hafi verið biðlað verið til annarra sveit­ar­fé­laga um þát­töku í kostnaðinum, en vilj­inn virðist ekki vera fyr­ir hendi.

Á fyrstu fjórum mánuðum ársins var 111 karlmönnum vísað frá …
Á fyrstu fjór­um mánuðum árs­ins var 111 karl­mönn­um vísað frá Gisti­skýl­inu sök­um fjölda. Krist­inn Ingvars­son
Í Reykjavík eru búsetuúrræði fyrir 29 einstaklinga sem glíma við …
Í Reykja­vík eru bú­setu­úr­ræði fyr­ir 29 ein­stak­linga sem glíma við vímu­efnafíkn. Krist­inn Ingvars­son
Reykjavíkurborg er eina sveitafélagið sem býður utangarðsmönnum upp á aðstoð.
Reykja­vík­ur­borg er eina sveita­fé­lagið sem býður utang­arðsmönn­um upp á aðstoð. Ásdís Ásgeirs­dótt­ir
mbl.is