Gistiskýlið flytur á Lindargötu

Utangarðs á Íslandi | 17. október 2013

Gistiskýlið flytur á Lindargötu 48

Gistiskýli fyrir heimilislausa reykvíska karlmenn verður flutt að Lindargötu 48 á vormánuðum 2014, en það hefur í rúm 40 ár verið rekið í Farsóttarhúsinu s.k. að Þingholtsstræti 25.

Gistiskýlið flytur á Lindargötu 48

Utangarðs á Íslandi | 17. október 2013

Gistiskýli fyrir heimilislausa karlmenn verður flutt í þetta hús að …
Gistiskýli fyrir heimilislausa karlmenn verður flutt í þetta hús að Lindargötu 48 í vor. mbl.is/Ómar Óskarsson

Gisti­skýli fyr­ir heim­il­is­lausa reyk­víska karl­menn verður flutt að Lind­ar­götu 48 á vor­mánuðum 2014, en það hef­ur í rúm 40 ár verið rekið í Far­sótt­ar­hús­inu s.k. að Þing­holts­stræti 25.

Gisti­skýli fyr­ir heim­il­is­lausa reyk­víska karl­menn verður flutt að Lind­ar­götu 48 á vor­mánuðum 2014, en það hef­ur í rúm 40 ár verið rekið í Far­sótt­ar­hús­inu s.k. að Þing­holts­stræti 25.

Þess er vænst að með flutn­ingn­um í nýtt hús­næði á Lind­ar­götu verði stuðning­ur við heim­il­is­lausa karl­menn í borg­inni bætt­ur veru­lega, en eins og mbl.is greindi frá í sept­em­ber hafa fleiri utang­arðsmenn en nokkru sinni fyrr sótt í gisti­skýlið það sem af er ári.

Ná­grönn­um verður boðið í heim­sókn

Hús­næði Far­sótt­ar upp­fyll­ir ekki þau skil­yrði sem nú eru gerð til starf­semi gisti­skýla, meðal ann­ars vegna ör­ygg­is­sjón­ar­miða og aðgeng­is, sam­kvæmt því sem fram kem­ur í bréfi vel­ferðarsviðs Reykja­vík­ur­borg­ar til íbúa og rekstr­araðila við Lind­ar­götu og ná­grenni þar sem fyr­ir­ætlan­irn­ar eru kynnt­ar.

Þar kem­ur einnig fram að framund­an séu fram­kvæmd­ir á hús­inu við Lind­ar­götu 48, bæði inn­an og utan húss, vegna fyr­ir­hugaðra flutn­inga. Þær hefjast á næstu mánuðum og er áætlað að þeim ljúki á vor­mánuðum 2014.

„Að fram­kvæmd­um lokn­um verður Gisti­skýlið flutt. Með þeirri and­lits­lyft­ingu sem gerð verður á hús­inu að Lind­ar­götu 48 bæði að inn­an og utan verður tryggt að húsið upp­fylli all­ar aðgeng­is- og ör­yggis­kröf­ur sem gerðar eru til gisti­skýla um leið og út­lit þess verður end­ur­bætt. Að fram­kvæmd­um lokn­um verður hags­munaaðilum og ná­grönn­um boðið að skoða hús­næðið þar sem starf­sem­in verður kynnt nán­ar,“ seg­ir í bréf­inu.

Starf­sem­in ekki áber­andi í hverf­inu

Lítið hef­ur farið fyr­ir starf­semi gisti­skýl­is­ins í Þing­holt­un­um. Húsið er opið frá 17:00 til 10:00 næsta dag og sam­kvæmt hús­regl­um skal vera kom­in á ró á miðnætti. Eng­in starf­semi er því í hús­inu á dag­inn.

Mark­mið gisti­skýl­is­ins er að veita hús­næðis­laus­um, reyk­vísk­um karl­mönn­um næt­urg­ist­ingu á meðan unnið er að lausn á hús­næðis­vanda þeirra. Þar fá þeir morg­un­verð og kvöld­hress­ingu í mat­sal og eru að lág­marki tveir starfs­menn á vakt hverju sinni. 

í Gisti­skýl­inu er mönn­um jafn­framt veitt ráðgjöf og þeir fá stuðning til að breyta aðstæðum sín­um. Ef um ít­rekaða dvöl er að ræða eru þeir í tengsl­um við fé­lags­ráðgjafa á þjón­ustumiðstöðvum.

Í bréfi vel­ferðarsviðs seg­ir að reynsl­an af rekstr­in­um að Þing­holts­stræti 25 sé sú að gest­ir séu lítið á ferðinni í ná­grenni húss­ins, nema þegar húsið opn­ar síðdeg­is og á morgn­anna þegar það lok­ar.

Ekki þarf að breyta deili­skipu­lagi

Lind­ar­gata 48 er á skipu­lags­svæði þar sem gert er ráð fyr­ir blandaðri starf­semi af marg­vís­leg­um toga. Gild­andi deili­skipu­lag að svæðinu var samþykkt í borg­ar­ráði 13. apríl 2004 og er notk­un húss­ins ekki sér­stak­lega skil­greind í deili­skipu­lagi. Sam­kvæmt Fast­eigna­mati rík­is­ins er húsið skráð sem iðnaðar­hús-næði.

Þar sem ein­göngu er verið að óska eft­ir að breyta innviðum húss­ins og notk­un á til­tekn­um stað, þarf ekki að breyta deili­skipu­lagi en sækja þarf um bygg­ing­ar­leyfi, að því er fram kem­ur í bréfi Vel­ferðarsviðs.

Sam­kvæmt skipu­lagslög­um þarf ekki að grennd­arkynna bygg­ing­ar­leyf­is­um­sókn þegar deili­skipu­lag er í gildi. Starf­sem­in sam­rým­ist ákvæðum Aðal­skipu­lags Reykja­vík­ur 2001-2024 um blandaða byggð og hef­ur Um­hverf­is- og skipu­lags­svið Reykja­vík­ur ekki gert skipu­lags­leg­ar at­huga­semd­ir við að breyta notk­un húss­ins.

Gert er ráð fyrir blandaðri byggð íbúðarhúsa og ýmiss konar …
Gert er ráð fyr­ir blandaðri byggð íbúðar­húsa og ým­iss kon­ar starf­semi á reitn­um þar sem gisti­skýlið flyt­ur. Reykja­vík­ur­borg
Farsóttarhúsið að Þingholtsstræti 25 hefur verið skjól útigangsmanna síðan á …
Far­sótt­ar­húsið að Þing­holts­stræti 25 hef­ur verið skjól útigangs­manna síðan á 8. ára­tugn­um. mbl.is/​Sverr­ir Vil­helms­son
mbl.is